18.08.1915
Efri deild: 36. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 520 í B-deild Alþingistíðinda. (560)
64. mál, aðflutningsbann á áfengi
Magnús Pjetursson :
Jeg ætla — með fáum orðum að víkja að ræðum háttv. 5. kgk. og háttv. framsögumanns.
Háttv. 5. kgk. lagði áherslu á orðin „það sem læknar telja nauðsynlegt“, og spurði við hvaða lækna þar væri átt. Mjer finst spurningin algjörlega óþörf; þar er vitanlega átt við hvern einstakan lækni. Annars hefði jeg ekkert haft á móti því, að læknar hefðu komið sjer saman um einhverjar ákveðnar víntegundir, og það var slík tilraun, sem jeg var að reyna við umræðu málsins, en þá var háttv. 5. kgk. þingmaður því mótfallinn, og var eina. þeirra, er feldu tillögu mína.
Háttv. sama þm. þótti hart, að fá nýbökuðum kandidötum slíkt vald í hendur,. að fyrirskipa áfengi til lækninga. Það má vel vera, að það sje hart, þó jeg ekki. skilji, hvers vegna ungir læknar eru ekki eins hæfir til að fara með slíkt vald, eins. og gamlir fauskar. En svo er þess að gæta, að kandidatar fá vald yfir ýmsu öðru en þessu, um leið og þeir fá prófvottorðið sitt. Þeir fá vald yfir morfíni, spíritus og alls konar eitri, sem vissulega er ekki minni vandi með að fara en þessar víntegundir.
Mjer þótti vænt um yfirlýsingu háttv.5. kgk. um okkur læknana. Hann tók það fram, að það væru margir heiðarlegir menn hjer á landi í þeirri stjett, og kvað lögin vera einungis fyrir þá veiku. En ekki verður því neitað, að hart er það, fyrst engin hætta er á að meiri hluti lækna misbrúki þetta vald, þá skuli þó allir verða að gjalda hinna fáu, sem búist er við að brotlegir verði. Og ekki einungis læknarnir, heldur einnig sjúklingarnir. En jeg þóttist gjöra nægilega grein fyrir því, við 2. umræðu, að þessi sama hætta gæti verið um öll möguleg lyf, sem hægt er að misbrúka.
Hv. 5. kgk. talaði um, að þetta mundi ekki auka á sæmd læknanna. Jeg hygg, að ómögulegt muni vera að spá neinu um það, hvorki til nje frá. En hinu verð jeg að neita, að það sje yfir höfuð nokkur vansæmd, þó einhverjir verði til að misbrúka þetta vald. Það er sjerstaklega skylda landlæknis að sjá um að slíkt komi ekki fyrir, og ef einhver gjörir sig sekan í slíku, þá er sjálfsagt að landlæknir beiti valdi sínu, ef honum. þykir sök til, og taki af þeim manni læknisleyfi, og mun engum vera þægð i, að haldið sje hlífiskildi yfir þeim, sem lögin brjóta; að minsta kosti hefi jeg aldrei óskað eftir slíku.
Hv. þm. talaði um, að með þessu væri verið að gjöra lækna rjetthærri en aðra menn. Jeg fæ ekki sjeð að munurinn sje svo mikill frá því, sem verið hefir. Við erum það rjetthærri en aðrir menn, að við höfum leyfi til að gefa mönnum eitur, og getum við þó ekki æfinlega vitað hvernig þeir muni með það fara. Þann rjett getur hv. þm. ekki af oss tekið.
Hv. þm. hugði, að það mundi fyrr eða síðar koma fram, að við læknarnir hefðum rangt fyrir okkur, og yrði það okkur þá til vansæmdar.
Það má vel vera. Það getur farið svo um áfengi sem mörg önnur lyf, að menn geta komist að þeirri niðurstöðu, að þau þurfi ekki að nota og betri lyf koma þá ef til vill í staðinn. En á meðan læknar álíta sig þurfa þessi efni til lækninga, þá eiga þeir heimtingu á að fá þau, ef þjóðin á ekki að bíða tjón.
Hinn hv. 5. kgk. þm. (G. B.) mintist á og margendurtók, að jeg hefði talað um vínbúðir lækna. Það mun vera satt, að jeg hefi viðhaft það orð, í mismæli fyrir vínbirgðir, og skal því gangast við því. En hann sagði sjálfur, að ef brtt. mín yrði samþykt, þá væru þar með 50 vínbúðir settar á stofn í landinu. Jeg verð að játa, að mig furðaði á að heyra slíka vantraustsyfirlýsingu til læknastjettarinnar af hans vörum.
Þá vítti hinn hv. þm. (G. B.) stjórnina fyrir, að hafa vísað þessu máli til læknafjelagsins, en ekki til hans. En jeg sje ekki að stjórnin sje vítaverð fyrir það, því að hv. þm. er sjálfur í læknafjelaginu, og stóð því vel að vígi um að telja fjelagið á sitt mál, ef það hefði verið á hans færi. Hann ljet og sem það hefði hneykslað sig, að jeg hefði gjört þetta mál að blaðamáli með því að láta prenta ræðu þá, sem jeg hjelt hjer í deildinni við 2. umræðu. En svo stóð á, að ritstjóri Ísafoldar beiddi um leyfi til þess að birta ræðuna, og gat jeg ekki haft neitt á móti því, enda er mjer ómögulegt að sjá, að hjer sje um neitt launmál að ræða, því þingtíðindin eru öllum opin. Jeg veit ekki heldur til, að jeg hafi vegið að honum í þeirri ræðu, Jeg hjelt að eins fram minni skoðun, og það er vist öllum leyfilegt. Jeg ætlaði mjer ekki að hafa neitt „fríspark“, enda var hann sjálfur til andsvara hjer í deildinni, og getur því ekki kvartað um, að jeg hafi ráðist að baki honum.
Þá verð jeg að svara nokkru ræðu hv. 4. kgk. (B. Þ.), þótt hv. þm. Seyðf. (K. F.) hafi þegar svarað henni að sumu leyti. Það var einn misskilningur hv. 4. kgk. þm. (B. Þ.), að hann hjelt að með brtt. ætti að lögfesta á lyfjaskrá allar þær víntegundir, sem þar eru nefndar. En það er ekki meiningin að löggilda þær, frekar en allan þann aragrúa lyfja, sem læknar nú mega panta, þótt ekki standi á lyfjaskrá. Hv. 4. kgk. þm. (B. Þ.) sýndi annars slíkan fróðleik um ýmsar tegundir vína, að mig næstum því sundlaði. Og er virðingarverð sú fyrirhöfn og vinna, sem hann hefir lagt í að safna að sjer þessum vínnöfnum. En honum er bráðnauðsynlegt að reyna að láta sjer skiljast það, að hjer er ekki verið að deila um, hvort nota eigi áfengi sem læknislyf, — það eru allir sammála um — heldur um hitt, hverjar áfengisblöndur megi nota. Og jeg verð enn sem fyrr að leggja áherslu á, að það er mjög þýðingarmikið, að geta gefið sjúklingnum áfengið í þeirri mynd, að hann hafi ekki óbeit á því. — Þá ljet hinn hv. 4. kgk. þm. (B. Þ.) traust sitt til læknastjettarinnar í ljós með þessari staðhæfingu, að nú ætti að koma 50 nýjum vínverslunum á laggirnar í stað þeirra 30, sem bannlögin höfðu lagt að velli. En jeg gjöri ráð fyrir, að ef læknarnir versla með vín hjer eftir, þá munu þeir einnig hafa gjört það hingað til, því að ekki hefir þá skort áfengið nje þekkingu til að blanda það til drykkjar sem nautnarmeðal. Hv. 4. kgk. þm. (B. Þ.) gat þess sínu máli til stuðnings, að fjárplógurinn risti djúpt í mannlegu holdi. Já, honum geri jeg nú að vita það. En hann ætti að geta skilið það, að ef læknar vilja auka tekjur sínar á slíkan hátt, þá geta þeir grætt nóg á því að selja spiritus. — Hv. 4. kgk. þm. stórhneykslaðist á þessum lyfseðli upp á 50 bjóra, sem komið hefir öllu þessu máli af stað. Honum þótti slíkur lyfseðill býsna kynlegur og þóttist af því dæmi sjá hver ósköp gætu af því hlotist, ef brtt. mín yrði samþykt. En jeg býst nú við, ef hinn hv. 4. kgk. þm. væri sjálfur læknir, þá mundi hann fara eins að. Ef einhver sjúklingur þyrfti t. d. í 2 mánuði að drekka 1 bjór á dag, þá gæfi hann sjálfsagt ekki út 50 lyfseðla og tæki krónu fyrir hvern, heldur ljeti hann einn duga. Hitt kynni að verða sjúklingnum fulldýrt, það væri að rista með fjárplógnum. — Hann þóttist nú svo sem ekki í vafa um, til hvers refarnir væru skornir. En mjer heyrðist hann ekki heldur vera í neinum vafa við síðustu umræðu, svo jeg kippi mjer ekki upp við það. En það get jeg frætt hann um, að (mörgum bannmönnum stendur stuggur af framkomu hans í þessu máli (Björn Þorláksson: Það má andbaningum þykja vænt um). Já, víst þykir okkur vænt um, að ofstækið hefir þó ekki steinblindað alla.
Hinn háttv. 4. kgk. þm. var að reyna að afsaka ofstækisummæli sín við 2. umr. og gerði það á þann hátt, að hann endurtók þau öll saman, að miklu leyti, svo að þeir sem ekki voru þá viðstaddir, hafa nú heyrt af sjálfs hans munni, hvílíkar ærumeiðandi aðdróttanir hann hefir haft í frammi í umræðunum um þetta mál. Jeg hygg, að þeir sjeu fáir, sem hafi ekki stórhneykslast, á smánarorðum hans um foreldra mína og hv. þm; Vestm. (K. E.): Hann sagðist aumkva okkur fyrir það uppeldi, sem við hefðum fengið. Hv. 4. kgk. þm. sagði, að það væri engin hamingja að hafa alist upp svo sem við, þau orð hans verða aldrei útskafin, þótt hann vilji hlaupa frá þeim. En jeg fyrir mitt leyti tel það mína mestu hamingju, að hafa fengið það uppeldi, sem jeg hef fengið, og hefði háttv. 4. kgk. þm. átt að hafa það hóf á sjer, að fara ekki út í slíka sálma, — fara ekki út í ættir.
Jeg vil enda mál mitt með því að taka það fram, að mjer finst það meira en lítill ábyrgðarhluti af Alþingi, ef það í slíku máli ætlar að skella skollaeyrum við yfirlýstum vilja nálega allra íslenskra lækna.