18.08.1915
Efri deild: 36. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 526 í B-deild Alþingistíðinda. (562)

64. mál, aðflutningsbann á áfengi

Steingrímur Jónsson:

Jeg ætlaði ekki að standa upp við þessa umræðu málsins, því jeg þóttist hafa talað nóg við síðustu umræðu. En það voru nokkur orð, sem hv. 5. kgk. þm. (G. B.) sagði; sem komu mjer til að standa upp, og það því fremur, sem þessi orð voru árjettuð af hv. 2. þm. G.-K. (K. D.). Hv. 5. kgk. þm. (G. B.) sagði viðvíkjandi brtt. á þgskj.

377, að það væri að eins að ræða um rjettindakröfu, og skildi jeg hann svo, að læknar væru hjer að verja einhver rjettindi fyrir sjálfa sig. Ef það er ekki annað, sem átt er við með tillögunni, þá er engin ástæða til að koma fram með hana, og þá væri engin ástæða fyrir mig til að greiða henni atkvæði mitt, því að það eru svo mörg þægindi og rjettindi, sem tekin eru frá mönnum með bannlögunum. En jeg sje ekki betur en að læknar landsins áliti nauðsynlegt, að þeir hafi þennan rjett. En fyrst farið var að minnast á rjettindi í þessu sambandi, þá vildi jeg minnast á, að það eru aðrir sem hafa rjett en læknarnir; það er almenningur þessa lands. Árið 1909 var tekinn frá honum sá rjettur, sem hann hafði haft til að drekka vín, en þá var leyft að hann mætti neyta þess, þegar hann gengi til altaris, og þegar hann lægi veikur á sóttarsæng. Þá var það hugmynd bannlaganna, að láta menn halda rjetti síum til að neyta áfengis, þegar læknar álitu það nauðsynlegt. Þennan rjett átti að taka frá mönnum með frv. þegar það var lagt fyrir þingið, og sömuleiðis með þeim úrskurði, sem svo mikið hefir verið talað um hjer. Jeg verð því að greiða atkvæði með brtt. á þgskj. 377, enda þótt hún sje víðtækari en nauðsyn krefur. Jeg verð að halda því fram, að það sje sjálfsögð rjettarkrafa fyrir almenning, að menn geti fengið að neyta áfengis, þegar þeir eru sjúkir, og læknir og sjúklingur eru ásáttir um að það sje nauðsynlegt.

Úr því að jeg stóð upp, vil jeg minnast á ummæli háttv. framsm. við síðustu umræðu, þar sem hann sagði að það væri ekki líklegt að andbanningar væru hollari bannlögunum en bannmennirnir. Í þessu kom fram ásökum um að við hjeldum þessu fram af því, að við værum Bakkusarvinir eða jafnvel Bakkusarþrælar. En við erum ekki eins miklir þrælar eins og þeir, sem álíta alla bölvun vera afleiðingar vínsins. Þeir sem voru á móti bannlögunum árið 1909 börðust á móti þeim af því, að þeir álitu þau óframkvæmanleg og að þau mundu því verða skaðleg fyrir siðferði þjóðarinnar. Því var það að jeg og fleiri gjörðum það sem við gátum, til þess að fyrirbyggja að bannlögin gengi í gildi 1915. En þrátt fyrir það höfum við viljað að þau væru haldin, úr því að þau eru komin á. Svo koma bannmenn með tillögu, sem skaðar bannlögin, því að það er víst, að þessi pólitík bannmanna á móti læknastjettinni er til skaða fyrir þau. Jeg held því, að okkar atkvæði, sem viljum eyða þessu frumv., sje hollara fyrir bannlöginn en hinna, sem því eru fylgjandi.

Það var tvent í ræðu háttv. þm. K. og G. (K. D.), sem jeg vildi minnast á. Hann sagði, að með tillögunni á þingskj. 377 væri gengið á móti meginreglu bannlaganna. En þetta er algerlega rangt. Hjer er komist dálítið öðru vísi að orði en í bannlögunum, en niðurstaðan er sú sama. Það er spiritusinn og eterinn, sem er það hættulegasta, en ekki portvín nje rauðvín og tæplega áfengt öl heldur.

Viðvíkjandi lyfjum, sem eitur er í, sagði hann að hann mundi vilja afmá þau úr lyfjaskránni, ef þau væru orðin eins hættuleg fyrir þjóðina og vínið, og ef læknar álitu að þau væru ekki lengur nauðsynlegt sem læknislyf. En læknar hafa ekki samþykt að vínandi sje ekki lengur nauðsynlegur sem læknislyf. Það er einmitt það, sem vantar hjer.

Forseti leitaði afbrigða frá þingsköpum um brtt. 377, 398 og 402, og voru þau leyfð og samþ. af deildinni.