10.09.1915
Efri deild: 57. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 530 í B-deild Alþingistíðinda. (565)

64. mál, aðflutningsbann á áfengi

Framsögumaður (Björn Þorláksson):

Í framhaldsnefndarálitinu um frumvarp þetta er frá því skýrt, að það sje loksins aftur komið til þessarar háttv. deildar, eftir að á því hafa verið gjörðar breytingar í háttv. Nd., og leggur nefndin það einróma til, að það verði samþykt eins og það nú liggur fyrir. Jeg skal þá skýra frá þeim breytingum, sem það hefir tekið í háttv. Nd. Það eru aðallega þrjár greinar, sem breytingar hafa verið gjörðar við, og það er 1., 3. og 4. gr. Breytingarnar við 1. gr. eru þær, að þegar frumvarpið fór hjeðan, var það með því ákvæði, að hjeraðslæknar mættu flytja vín öll og annað áfengi, er þeir þættust þurfa til lækninga, inn í landið. Þessu hefir verið algjörlega slept, og er nú ætlast til að pantanir allar gangi gegn um lyfjabúðina. Enn fremur hefir verið þrengt ákvæðið um smáskamtalækna, svo að nú er þeim að eins heimilt að fá í lyfjabúðinni smáskamtalyf með vínanda í, ef meðmæli hlutaðeigandi lögreglustjóra og sóknarprests fylgja pöntun þeirra. Þriðja breytingin við 1. gr. er sú, að við greinina er bætt nýrri málsgrein; þess efnis, að stjórnarráðið skuli löggilda til lækninga, með viðauka við lyfjaskrá, þessa áfengisvökva: rauðvín, malaga, sherry, portvín, kognak. Þá er stuttlega getið breytinganna við 1. gr.

Við 3. gr. er viðauki. Það er málsgrein, sem skotið er inn í greinina, og er þess efnis, að stjórnarráðið getur veitt fólksflutningaskipum, sem eru í siglingum milli landa og hafa pláss fyrir ákveðna tölu farþega, undanþágu frá því ákvæði, að ekkert íslenskt skip megi flytja áfengi til landsins. Þessari breytingu er aðallega bætt við 3. gr.; og dregur nokkuð úr 1. málsgrein hennar.

Svo er breyting við 4. gr. Hún var í tveimur málsgreinum; sú fyrri hefir verið feld alveg, en sú seinni er orðin breytt. Hún var þannig, að manni, sem hittist ölvaður, mátti stefna fyrir dómara, og ef hann gjörði ekki grein fyrir, hvernig hann fekk vín, átti hann að teljast brotlegur gegn 1. gr. Þannig fór frumvarpið hjeðan, en nú hefir þessu verið breytt þannig, að hann skal sæta sektum frá 20–500 kr., eða með öðrum orðum, ákvæðið hefir verið linað að miklum mun.

Breytingarnar eru þá ekki aðrar en þessar, og ætla jeg ekki að skýra frá að hvaða leyti frumvarpið hefir batnað eða versnað, Það er allmikið vandaverk að gjöra það fyrir nefndarinnar hönd, því að skoðanir hennar á málinu eru talsvert ólíkar. Nefndin varð sammála um að leggja til að frumvarpið yrði samþykt óbreytt, eins og það. er nú komið frá háttv. Nd. Jeg vona að. það verði líka gjört. Reyndar sje jeg hjer, að háttv. þm. Ísaf. (S. St.) hefir komið. fram með brtt. á þgskj. 917 við 6. málsgrein 3, greinar.. Hún fer fram á að það ákvæði falli burt, að skipstjóri beri ábyrgð á brotum skipverja. Það er undarlegt, að þessi breytingartillaga skuli nú koma fram; meðan málið var hjer til meðferðar í Ed. var þó gott tækifæri til að koma henni að En jeg þykist skilja, að tilgangurinn sje sá, að þvæla málinu aftur niður í neðri deild og láta það þar sæta þeim óvissu örlögum, sem við má búast síðustu daga þingsins. Þetta eru því nokkurs konarbanaráð gegn þessu frumvarpi, og skil jeg vel að þau koma frá þessum þingmanni, sem ekki er mikið áhugamál um viðhald bannlaganna. Hann sýndi það með fyrstu ræðu sinni við 1. umræðu þessa máls, því þá talaði hann talsvert geyst á móti bannlögunum. En það þykir mjer því einkennilegra, sem bæði hann og sessunautur hans, háttv. 6. kgk. þm. (J. Þ.), greiddu þó atkv.. með þeim 1909. Þeir verða því að teljast smiðir þeirra og bera ábyrgð á þeim, og situr því illa á þeim að reyna að spilla þeim nú. Jeg segi spilla þeim, því það. er einmitt kjarni 3. greinar, að skipstjóri beri ábyrgð á brotum skipverja. Jeg sje að tilgangurinn er sá, að breyta frumv. enn, svo að það verði að fara aftur úr deildinni. Refarnir eru skornir til þess. Jeg: álít að ekki þýði að tala um þetta fleiri orð. Jeg er búinn að tala áður svo mikið um það, og mun því láta atkvæði skera úr örlögum. Að eins vil jeg biðja forseta að hann láti fram fara nafnakall um breytingartillöguna og frumvarpið í heild sinni.