10.09.1915
Efri deild: 57. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 533 í B-deild Alþingistíðinda. (566)
64. mál, aðflutningsbann á áfengi
Sigurður Stefánsson:
Jeg hefi síðan við 1. umr. þessa máls setið þegjandi og ekki lagt neitt til þess. Það getur vél verið, að þögnin hafi þótt vottur um ofstæki, því að flest á nú orðið að vera vottur þess.
Jeg verð að taka það strax fram, að jeg ber enga ábyrgð á frumvarpinu; það getur verið, að jeg beri ábyrgð á bannlögunum, af því að jeg greiddi þeim atkvæði mitt, en alls ekki á þessu frumvarpi. Þess vegna er jeg á móti öllum frumvörpum, sem miða að því að spilla þeim. Jæja, jeg skal þá víkja að breytingartillögunni. Háttv. 4. kgk. þm. (B. Þ.) telur hana banaráð við frumvarpið, því að málsgreinin, sem hún fer fram á að falli burt, sje aðalkjarninn í frumvarpinus (Björn Þorláksson: Jeg sagði það ekki; jeg sagði kjarninn í 3. grein). Jæja, 3. grein. Jeg verð að taka það fram, að jeg stend ekki vel að vígi, því að jeg er ekki löglærður; það mun miklu fremur vera lögfræðinganna að skera úr því, hve nær brotnar sjeu grundvallarreglur laganna. En jeg hefi þótst hafa lært það bæði í guðs og manna lögum, að hver maður ætti að bera sjálfur ábyrgð á gjörðum sínum, en ekki á gjörðum annara fullveðja manna, er hann fær engu ráðið um hvernig breyta. En þetta ákvæði frumvarpsins að láta skipstjóra bera ábyrgð á brotum skipverja sinna, sem hann í mörgum tilfellum alls ekki fær við ráðið; það finst mjer sannast að segja gagnstætt guðs og manna lögum. Mjer þætti vænt um ef háttv. flutningsmaður (B. Þ.) gæti bent á eitt einasta hliðstætt dæmi í íslenskum lögum, sem getur dregið úr allan efa um að þetta sje rjettmætt ákvæði. Fyrir mjer er það hróplegt ranglæti að sækja mann sektum fyrir verk, sem hann fær engu um ráðið og gjört er enda í banni hans. Það er einmitt kjarninn í 3. gr. „að hengja bakara fyrir smið“, að láta sektir og hegningu fyrir brot, sem annar drýgir, skella á alsaklausum manni. Sem sagt, jeg skýt því til lögfræðinganna hjer í deildinni, hve skemtilegt þeim myndi þykja, að dæma skipstjóra fyrir bannlagabrot, sem einhver skipverja hans hefði framið í óleyfi hans og að honum fornspurðum.
Það má reyndar bera það í vænginn, að skipstjóra sje innan handar að sjá um, að hásetar hans brjóti ekki þessa grein, en það er fjarri öllum sanni. Jeg hefi talað við greindan og góðan skipstjóra, sem er enginn ofstækismaður, og hann hefir sagt, að það væri ómögulegt fyrir skipstjóra að ábyrgjast það, að hásetar hans hefðu ekki áfengi í vörslum sínum. Skipatjórinn gæti að vísu sagt skipverjum hvað við lægi, ef þeir hlýddu honum ekki, en væri ómögulegt að ábyrgjast að þeir hlýddu. Jeg tek mjer það ljett, þótt þessi brtt. mín, um að nema þetta ákvæði úr 3. gr., sje af ofstækisfullum bannmönnum talið banaráð við frumvarpið; jeg skýt því til rjettlætistilfinningar háttv. deildarmanna, sem ekki eru blindir á báðum augum af bannofstæki, hvort þeim blöskrar ekki svona ranglæti.
Í 14. gr. bannlaganna stendur, að brot gegn 1. grein þeirra varði 200–1000 kr. og í annað skifti 500–2000 krónum.
Samkvæmt þessu frumvarpi eiga svona sektir að liggja við því fyrir skipstjóra, ef háseti hans laumar flösku um borð eða flytur hana í land, þótt skipstjóri eigi þar engan hlut að, og það sje gjört í banni hans og honum óafvitandi. Hann á að borga 200–2000 krónur fyrir þessa einu flösku, sem hásetinn laumar um borð erlendis eða í land er hingað kemur. (Björn Þorláksson : Hann verður búinn að drekka úr flöskunni áður en hann kemst til landsins). Þótt það vitnaðist, að hann væri búinn að drekka úr flöskunni, er óvíst hvort skipstjóri slyppi við sektir. (Björn Þorláksson: Ekki verður hann sektaður fyrir tómar flöskur). Það er eitt heppilegt legt í lögunum; maður má flytja sjálfan sig blindfullan bæja og landsfjórðunga milli, en ef maður hefir á sjer einn lítinn bólupela með áfengi í, þá varðar það sektum. Það er eins og ef vinnumaður færi í kaupstað og næði sjer þar í „sprútt“ og flytti heim og drykki þar, lægi svo með timburmenn í 2–3 daga og gæti ekkert gjört, og síðan ætti bóndinn að borga háa sekt fyrir þetta bannlagabrot vinnumannsins ofan á vinnutapið. Flest má nú kalla rjettlæti, ef menn telja slík ólög rjettlát.
Eða ef t. d. vinnuveitandi hjer í Rvík, sem hefir mörg hundruð manns í vinnu inni á Kirkjusandi, á að ábyrgjast að enginn verkamannanna nái sjer í áfengi t. d. úr skipi á höfninni, og flytji það heim til sín, á að sæta sektum fyrir þetta tiltæki verkamannsins. Það liggur svo í hlutarins eðli, að í stórum skipum, sem hafa stórar lestir fullar af vörum, er hásetum hægt að leyna áfengi, án þess skipstjóri hafi hugmynd um. Eða hvernig í ósköpunum ætti hann að ábyrgjast að skipverjar gætu aldrei laumað neinu áfengi um borð? Hann mætti aldrei úr skipinu fara meðan það tæki farm, yrði að rannsaka hvern kassa og pjönku, sem um borð kæmi og fylgja skipverjum nótt og dag og gæti þó ekki ábyrgst þá.
Hjer í Reykjavík eru 8 eða 10 lögregluþjónar, og þó geta menn gengið með fullar tökur og fulla vasa af áfengi um göturnar. (Björn Þorláksson: Hefir þingmaðurinn fengið sjer þar í staupinu?) Það varðar háttv. 4. kgk. þm. ekkert um. Þessi lög ýta að eins undir óhlutvanda skipverja með að brjóta lögin, því að sökin skellur á skipstjórann. Það örvar ólöghlýðni og dregur úr ábyrgðartilfinningunni að þurfa ekki að bera ábyrgð á sínum eigin gjörðum; það skilur hver heilvita maður. Jeg er því á móti þessu ákvæði, og vil fella það. Jeg vil ekki brugga lögunum banaráð, heldur þessu ákvæði, því jeg álít það spillandi. Jeg veit að hv. 4. kgk. (B.Þ.) lítur á þetta öðrum augum, en jeg ætla ekki að reyna að sannfæra hann. Jeg skil ekki annað en að það sjeu svo margir rjettsýnir menn í neðri deild, að þeir samþykki frumvarpið, þótt þessi brtt. verði samþykt hjer, og jeg skil ekki í mörgum góðum bannvinum hjer í þessari háttv. deild, að þeir skuli ekki sjá að hún er rjett.
Það er einmitt brtt. mín, sem miðar að viðhaldi bannlaganna, og miðar að því, að auka virðinguna fyrir þeim, en það geta aldrei þau ákvæði gjört, sem stríða bæði. móti guðs og manna lögum.