10.09.1915
Efri deild: 57. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 548 í B-deild Alþingistíðinda. (576)
64. mál, aðflutningsbann á áfengi
Karl Finnbogason:
Mjer virðist, að hv. þm. sjeu hjer að deila um keisarans. skegg. Ágreiningsatriðið er 6. málsgr. 3. gr., en jeg vil leyfa mjer að benda á, að sama ákvæði er í 4. málsgrein sömu greinar. Ef fella ætti eitthvað í burtu þá þyrfti því að hafa það meira, og með leyfi hv. forseta, skal jeg lesa upp kaflann:
„Nú hefir skipið áfengi frá útlöndum, er ekki á að fara til umsjónarmanns áfengiskaupa, og skal lögreglustjóri þá á hinni fyrsta höfn, er skipið kemur til, setja embættisinnsigli sitt fyrir hið aðflutta áfengi, og ábyrgist skipstjóri, að engu áfengi sje skotið undan innsiglan og að innsigli sjeu ekki brotin eða af áfenginu tekið, o. s. frv.“
Hjer er öll ábyrgð lögð á herðar skipstjóra. Greinin, sem fella á burt, takmarkar aðeins ábyrgðina; leggur enga ábyrgð á skipstjóra, nema á brotum skipverja einna: Þótt einhverjir aðrir brjóti lögin án vitundar skipstjóra, ber hann enga ábyrgð á því. Lögin verða því enn verri, ef tillaga hv. þm. Ísfirðinga verður samþykt. En þess ætlast hann vafalaust ekki til.
Jeg mun því greiða atkvæði móti breytingartillögunni.
Og þar sem sams konar ábyrgð er lögð á skipstjóra með ýmsum öðrum lögum en þessum, sje jeg ekki ástæðu til að gjöra rellu út af því. Og þótt mjer þyki hv. Nd. hafa spilt 1. gr. frumvarpsins, með því að lögbjóða að eins löggildingu vissra vína á lyfjaskrá, en láta læknum ekki vera með öllu frjálst að nota það, sem þeir telja heppilegt, mun jeg greiða frv. atkvæði, svo lögin fái að reyna sig með þessum breytingum, sem svo mikið kapp hefir verið lagt á að koma fram.