10.08.1915
Efri deild: 28. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 558 í B-deild Alþingistíðinda. (590)
46. mál, sveitarstjórnarlög
Björn Þorláksson:
Jeg fyrir mitt leyti vil lýsa yfir því, að jeg er hlyntur þeirri breytingu, að kosningar til hreppsnefnda fari leynilega fram. Jeg álít þær sjeu heppilegri, því ekki verðar borið á móti því, að við slíkar kosningar hafa stundum verið notaðar miður heppilegar agitationir, þó ekki sje það algengt. Jeg hefði því gefið frv. atkvæði mitt, ef mjer hefði ekki þótt 1. gr. athugaverð. Atkvæðagreiðslan er ekkert athugaverð, en það er áframhald greinarinnar. Jeg hefi ekki getað sjeð, hvenær kjósa á til sýslunefnda. Eðlilegast virðist að í þær væri kosið um leið og til hreppsnefnda, sem sje á hreppamótum. Þar er nú kosið til hreppsnefnda, en á manntalsþingum; manntalsþingin eru venjulega fremur illa sótt. Mjer finst því nauðsynlegt, að lagfæra frv., og vil skjóta því til flm., hvort hann vildi ekki taka, það af dagskrá, svo hægt sje að koma fram þeim lagfæringum, sem nauðsynlegar eru.