13.09.1915
Efri deild: 59. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 160 í B-deild Alþingistíðinda. (63)
108. mál, fjárlög 1916 og 1917
Jón Þorkelsson:
Jeg á hjer tvær brtt. og ein lítil er á leiðinni, sem menn fá bráðum að sjá, og skal jeg því mæla fram með henni undir eins.
Það er þá fyrst efnisbreyting við 15. gr. 16, þar vil jeg bæta við nýjum lið, þess efnis, að veitt, verði fje til þess að gefa út heildarútgáfu af ritum Hallgríms Pjeturssonar. Öllum er kunnugt um þennan mann, hvílíkur þjóðarsómi var að honum, og þarf því hans vegur að verða sem mestur. Rit hans þarf að birta og gjöra að alþýðueign, því að ekki má láta þau liggja óprentuð eða í þeim ritum, sem óaðgengileg eru fyrir alla alþjóð. Útgáfa þessara rits hefði þurft að liggja fyrir þinginu 1914, á 300 ára afmæli hans, en það hefir því miður gleymst. Nú hefi jeg dirfst að koma með þessa breytingartillögu, því að það er mín skoðun, og jeg hygg flestra, að þetta megi ekki vera ógjört. Spursmál er þá, hvort þetta fje muni nægja, og hygg jeg að varla muni hjá því fara, að hægt verði að komast að samningum við eitt¬hvert fjelag um útgáfu ritanna fyrir þessa upphæð. Jeg þarf ekki að tala fleira um manninn, því að hann er svo alkunnur að hvert mannsbarn á landinu þekkir hann, og öllum er hann kær.
Jeg hefi leyft mjer að gjöra þá breytingartillögu við 15. gr. 19, að hin hlálega athugasemd aftan við liðinn falli burt.
Klausan er orðin svo kunnug, að jeg fjölyrði ekki mikið um hana. Við þessa litlu fjárveitingu á að elta háskólaráðið, Bókmentafjelagið og Stúdentafjelagið til álita um, hvort óhætt sje að veita 100 kr. eða ekki til ýmsra skálda og listamanna. Ef landið ætti þessar stofnanir, svo að lög¬gjafarvaldið gæti skotið fjárveitingarvaldi sínu undir þær, þá væri öðru máli að gegna. Því verður ekki neitað, að þingið á ef til vill með það, að því er Háskólann snertir, og sama má segja um Bókm.fjel., því að það hefir notið landssjóðsstyrks langa lengi. Hins vegar er það að segja um Stúdentafjelagið, að þótt okkur þyki vænt um það, þá er það ekki þessháttar stofnun, að landið geti skotið fjárveitingarvaldi sínu undir það.
Þessi klausa virðist því ekki eiga heima i fjárlögunum og gjörir þar ekkert gagn. Stjórninni hefir verið fengið fje til útbýtingar handa skáldum og listamönnum, og hefir það verið gjört til þess að forðast alt skraf um einstaka menn. En hjer i þess¬ari athugasemd er einmitt ætlast til að þessi fjelög viðhafi bæði skraf og skrif um mennina. Jeg hygg því flestum falli illa þessi athugasemd, og finnist hún óviðeigandi, ef þingið ætlar á annað borð að treysta stjórninni til að útbýta þessum styrk. Jeg vona því að háttv. deild sam¬þykki þessa breytingartillögu mína.
Breytingartillaga, sú sem jeg býst við að komi bráðum hingað inn á borðin, stendur í nánu sambandi við lög, er samþykt voru í dag í háttv. Nd., um laun aðstoð¬arskjalavarðar. Jeg hefi leyft mjer að fara fram á að þau verði hækkuð upp í 1800 kr., og verði jöfn launum 1. bókavarðar við Landsbókasafnið. Þessar 600 kr., sem jeg vil láta bæta við laun hans, færast að eins til í fjárlögunum, því að þær eiga að dragast frá þeim 2000 kr., sem Hannesi Þorsteinssyni eru ætlaðar fyrir að rita æfi¬sögur merkra manna. Jeg legg til að sá liður verði færður niðar i 1440 kr. hvort árið.
Þetta hefi jeg gjört i samráði við Hannes Þorsteinsson sjálfan, því að þetta fyrirkomulag er betra og tryggara fyrir mann¬inn en laus ritstyrkur. Jeg þarf ekki að tala meira. Háttv. 1. kgk. þm. (F. B.) tók ágætlega til athugunar þann lið í brtt. nefndarinnar, sem jeg annars hefði talað um, og tók því þar af mjer ómakið.