09.09.1915
Efri deild: 56. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 592 í B-deild Alþingistíðinda. (641)
93. mál, hagnýting járnsands
Sigurður Stefánsson:
Jeg hefi leyft mjer að koma fram með brtt. á þgskj. 813.
Svo er um mál þetta, að það getur að vísu verið glæsilegt til fjár fyrir þingið, og því skylda þess, að hugsa sig tvisvar um, áður en það leggur stein í götu þess. Því peningavon er ef til vill nokkur. En jeg álít það líka skyldu þingsins, jafnt í þessu máli sem öðrum, að athuga vel, hvað það er að gjöra, og gleypa ekki umhugsunarlaust hverja þá flugu, sem að kemur. Hvað þetta mál snertir, þá er grundvöllurinn ekki sjerstaklega vænlegur. Það er regla í almennu viðskiftalífi, að menn vilja helst þekkja þann aðilja, er þeir semja við, og gjöra það ekki ella, en svona lög frá löggjafarvaldinu eru grundvöllur til samninga fyrir landsstjórnina. Þegar litið er á, hverja hjer á að semja við, þá vitum við það eitt, að fjelagið heitir S. O & Co. og á heima í Lundúnaborg. Annað vitum við ekki eftir þeim upplýsingum, sem fyrir liggja. Þetta er algjörlega ónógt; við verðum að fá að vita, hvort fjelag þetta er samningshæft, og hvort nokkur von er um, að eitthvað komi út af samningum þessum. Allar fyrirspurnir, sem gjörðar voru í hv. Nd., viðvíkandi fjárhag fjelags þessa og ástæðum, hafa verið árangurslausar. Enska stjórnin hefir tvisvar verið spurð, og í bæði skiftin hliðrað sjer hjá að svara, og að því er sagt er, hafa fyrirspurnir í gegn um Íslandsbanka verið til einskis. Jeg verð því að segja, að þetta er ofurlítið skrítið, ekki síst þegar þess er gætt, að sagt var í Nd. að stofnfje fjelagsins væri 3 milj. sterlpd., og er það allálitleg upphæð, og ætti þess frekar að vera hægt að fá nokkra vissu um fjelagið.
Allt það, sem við vitum um tildrög þessa máls, er það, að maður nokkur kom hjer til lands, til að skoða þenna sand. Annað veit Alþingi ekki, nema það, sem sagt hefir verið um stofnfjeð, og þar hefir fylgt með, að af þeirri upphæð ættu 300 þús. sterlpd. að ganga til fyrirtækisins hjer. Þetta er vitanlega stórfje, og þess vegna lít jeg svo á, að ekki væri nema sanngjarnt, að einhver trygging væri heimtuð fyrir því, að þetta væri eitthvað annað en fálm.
Jeg lít sem sje svo á, að ekki sje samboðið virðingu löggjafarvaldsins, að hlaupa upp til handa og fóta, þó einhverjir einstakir menn komi og segist hafa svo og svo margar miljónir undir höndum, til þess að stofna hjer ýms fyrirtæki, og segi: Veitið okkur leyfi! Í Englandi er eins og annarsstaðar fjöldi fjárglæframanna, og viti þingið ekki með vissu, að ekkert slíkt sje hjer um að ræða, ber því skylda til að neita beiðninni. Af þessum ástæðum hefi jeg komið með brtt. Ef fjelagið er trygt og áreiðanlegt og hefir stofnfje það, sem látið er í veðri vaka að til sje, þá: er tryggingarupphæðin svo lág, að hún getur ekki orðið fyrirtækinu að falli, en hins vegar er hún sanngjörn og gefur ofurlitla tryggingu. Annars er upphæðin í raun og veru of lág. Mjer er að vísu ekkert sjerstakt kappsmál að brtt. verði samþykt, en jeg kunni betur við að koma. með hana.