09.09.1915
Efri deild: 56. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 594 í B-deild Alþingistíðinda. (642)
93. mál, hagnýting járnsands
Eiríkur Briem:
Jeg get ekki greitt atkvæði með frumvarpi þessu, eins og það. liggur fyrir. Áður fyrr komu fram beiðnir um einkaleyfi, t. d. til að vinna salt,. en þar var tíminn 30 ár, og jeg álít það alt of langt. En af því að ekki varð sjeð, að það kæmi í bág við hagsmuni nokkurs manns, þá var það látið ganga fram. En þegar um einkarjett er að ræða, þá á: hann hvorki að vera 30 og því síður 50 ár. Jeg skal ekki segja að þetta mætti ekki innan landhelgi við Hjeraðsflóa, en þessir menn, sem hjer ræðir um, hafa forgangsrjett til að hagnýta sjer sandinn, hvar sem er, og geta þannig bolað öðrum frá, nema þeir borgi þeim eitthvað, og gjört sjer forgangsrjett sinn að fjeþúfu, án þess sjálfir að starfrækja nokkurn hlut. Af þessum ástæðum get jeg ekki greitt atkv. með frv., eins og það er nú.