09.09.1915
Efri deild: 56. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 596 í B-deild Alþingistíðinda. (644)
93. mál, hagnýting járnsands
Sigurður Stefánsson:
Hv. þm. Seyðf.(K. F.) talaði um, að skilyrðin í brtt, minni væru nokkuð ströng. Jeg gat ekki annað sjeð, en að þetta sjeu sjálfsögð skilyrði, sem jafnan verði að setja undir líkum kringumstæðum. En fari svo, að leyfi verði veitt og leyfishafi notar það ekki, þá er ekki nema eðlilegt að löggjafarvaldið líti svo á, sem það sje flekað. Og ekkert er algengara í viðskiftalífinu en að tveir menngjöri samning, og ef hann er svo ekki uppfyltur af öðrum aðilja, þá vill hinn aðilinnjafnan fá eitthvað fyrir snúð sinn og snældu Ekki er hægt með nokkurri sanngirni að. segja, að líklegt sje, að þessar 100,000 kr. sem brtt. fer fram á sem tryggingu, muni tálma fyrirtækinu, nema því að eins, að þetta sje alt humbug. (Karl Finnbogason: Það tálmar því, að frumvarpið komist í gegn um þingið). Jeg fæ ekki sjeð, að svo þurfi að fara, því þó áliðið sje þings, þá má vel afgreiða frv. með afbrigðum frá þingsköpunum, eins og oft er siður um þau mál, sem menn leggja mikið kapp á að koma l gegn um þingið.
En annars er slík trygging, sem hjer er farið fram á, alls ekki neitt nýtt, er jeg hafi fyrstur manna fundið upp. Jeg hygg að fleiri ríki heimti ávalt einhverja. tryggingu, þegar þau veita slík einkaleyfi,. sem hjer er talað um. Jeg þarf t. d. ekki að minna á annað en það, að þegar fyrst: kom til orða að leggja sæsíma yfir Atlantshafið hingað til Íslands, þá veitti danska stjórnin einkaleyfi í því skyni, en hún heimtaði 100,000 dala tryggingu fyrir því, að verkið yrði framkvæmt. Nú fór eins og kunnugt er svo, að maðurinn, sem einkaleyfið fjekk, gat fyrir sjerstaka slysni ekki lagt út í fyrirtækið, en danska stjórnin stakk þessum 100,000 dölum í ríkissjóðinn. Slík dæmi eru algeng í heiminum. Hefði brtt. mín verið þannig, að heimtað hefði verið of fjár af fjelaginu, þá hefði vitanlega mátt segja, að vísvitandi væri verið að setja stein í götu fyrir fjelagið, en þar sem hjer er ekki að ræða um nema 2% af stofnfje fjelagsins, þá getur það ekki tafið fyrirtækið, nema því að eins, að fjelagið hafi ekkert fje með höndum.