08.09.1915
Efri deild: 55. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 605 í B-deild Alþingistíðinda. (660)

52. mál, tún og matjurtagarðar

Hákon Kristófersson:

Jeg greiddi atkvæði á móti þessu frv. við 2. umræðu málsins; ekki af því, að jeg áliti málið ekki þarft, heldur fyrir þá sök, að það mundi hafa í fór með sjer aukin útgjöld fyrir landssjóð. Og þar sem bæði þingmenn og aðrir eru stöðugt vælandi og kveinandi yfir fjeleysi og dýrtíð, þá finst mjer harla einkennilegt, að þetta frv. megi ekki biða þetta fjárhagstímabil, og fæ jeg ekki sjeð að neitt liggi á því. Jeg mun því greiða atkvæði á móti frv. einnig við þessa umræðu málsins.