07.09.1915
Efri deild: 54. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 623 í B-deild Alþingistíðinda. (677)

91. mál, Þjóðskjalasafn Íslands

Ráðherra:

Það er að eins örstutt athugasemd, sem jeg vil gjöra út af ræðu hv. 2. þm. G:-K. (K. D.). Það er að vísu satt, að safn það, sem hjer ræðir um, er í frv. nefnt Þjóðskjalasafn, en í stjórnarskránni nýju, er það nefnt Landsskjalasafn, og því eigi fullkomið samræmi milli þessa tvenns. Það er eðlilegt, að slíkt geti komið fyrir. Löggjöfin nefnir stofnunina því nafni sem hún ber, þegar lögin eru sett, en slíkt getur breytst er stundir líða, og er þá eðlilegt að seinna nafnið sje tekið upp í ný lög, sem það snerta, án þess það hverfi samhliða úr eldri lögum. Skal jeg nefna dæmi slíks. Í stjórnarskrá Dana er ákveðið, að eiðstafur konungs skuli geymdur í Geheimearkivinu, en með lögum 30. mars 1889 var nafni þess breytt og það nefnt Rigsarkiv; eigi að síðar helst hitt nafnið óhaggað í stjórnarskránni. Það er rjett hjá hv. 2. þm. G.-K. (K. D.), að jeg hefi komið með brtt. við fjárlögin í hv. Nd., um að hækkuð sjeu laun fornmenjavarðarins, því jeg álít þau laun ósanngjarnlega lág, sem hann hefir nú.

Hv. 2. þm. G.-K. (K. D.) kvað 2500 kr. vera nóg laun handa landsbókaverði. Mig furðar að heyra þetta af munni hv. þm., sem vanur er að líta frjálslega og sanngjarnlega á slík mál sem önnur. Í engu öðru landi mundi landsbókaverði boðin slík laun; staða hans þykir þýðingarmeiri en svo, og jeg þykist þess fullviss, að launanefnd sú, sem nú situr á rökstólum, muni eigi koma með slíka fjarstæðu.

Um tíundina á tekjum núverandi landsskjalavarðar, skal jeg vera fáorður, enda á það varla við, að gjöra mönnum tíund á þessum stað. Þó skal jeg geta þess, að styrkurinn til útgáfu Alþingisbókanna rennur ekki í hans vasa, Sögufjelagið hefir fengið hann, og mjer er kunnugt um það, að enginn af þeim, sem starfað hafa að útgáfu Alþingisbókanna, hefir þar tekið borgun fyrir annað en prófarkalestur, þegar það er undan tekið, að í fyrra mun hafa verið borgað lítið eitt fyrir registurssamning. Undirbúningur verksins undir prentun hefir verið gefinn, og hefir það þó verið allmikið starf. Sögufjelagið er fátækt, en útgefendum Alþingisbókanna annt um, að verkið gangi sem greiðast, og því hefir það orðið lítil fjeþúfa fyrir þá. Sama er að segja um styrkinn úr sjóði Jóns Sigurðssonar til Alþingisbókanna; honum mun verða varið til útgáfu þeirra. (Jón Þorkelsson: Hefir þegar verið varið til þess). Mjer er ekki fullkunnugt um, hvernig fjárveitingunni til að afrita og ljósmynda skjöl erlendis, þau er Ísland snerta, hefir verið varið. Jeg veit að styrkurinn hefir gengið til tveggja safna, Landsbókasafnsins og Landsskjalasafnsins. Sá, sem verkið vinnur, hefir fengið fjeð borgað út hjá tveim trúnaðarmönnum safnanna og stjórnarinnar, þeim Jóni Krabbe, skrifstofustjóra íslensku stjórnarskrifstofunnar í Kaupmannahöfn, og prófessor Finni Jónssyni. En til þess að tryggja, að reikningarnir sjeu rjettir, hefir sú ráðstöfun verið gjörð, að tveir — að því er jeg ætla — af skjalavörðunum við Ríkisskjalasafnið skrifi á reikningana, að þeir sjeu rjettir. Jeg sje ekki hvernig betur er hægt að tryggja þetta en gjört er.

Ekki er mjer kunnugt um, hvaða skjöl hafa verið afrituð. Landsbókavörður mun ráða því fyrir Landsbókasafnið, en landsskjalavörður fyrir Landsskjalasafnið. Mun ekki gott að fela öðrum það.

Um útgáfu Fornbrjefasafnsins er það að segja, að nokkrir skorbíldar munu í fjárveitinguna til þess ganga, bæði til registursgjörðar og fleira, sem útgefandi verður að borga út. En fyrir því fje er mjer ekki skylt að gjöra grein; veit að eins, að það gengur nokkuð í sjálft sig.

Inn í annað í umræðum manna um mál þetta ætla jeg ekki að blanda mjer.