02.08.1915
Efri deild: 21. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 636 í B-deild Alþingistíðinda. (701)
3. mál, kosningar til Alþingis
Framsm. (Karl Finnbogason) :
Eins og hinni hv. deild er kunnugt, þá tók nefndin aftur brtt. sínar við 2. umr., en nú flytur hún sömu tillögurnar á ný, og auk þess nokkrar nýjar tillögur. Allar hinar fyrri tillögur eru svo sem þær áður voru, nema 8. tillagan á þgskj.125. Hún var áður svo, að í stað 10% komi l2%, sem sje að 12% væri sent umfram í kjördæmi hvert, fram yfir kjósendafjölda þar. En nefndin hefir breytt því á þá lund, að landsstjórnin skuli senda sýslumönnum og bæjarfógetum nægilegu marga seðla umfram kjósendatölu. Hún áleit, að svo gæti verið í einstökum tilfellum, að 12% yrði — óþarflega mikið. Hjer fer nefndin að eins fram á, að landskjörstjórn sendi sýslumönnum og bæjarfógetum aukaseðla eftir sömu reglu og stjórnarráðið sendir yfirkjörstjórnum kjördæmanna nú. Væntanlega er ekkert við það að athuga.
Auk þess hefir nefndin borið fram ýmsar smávægilegar orðabreytingar, er hún telur æskilegar. Finn jeg ekki ástæðu til að tala nánar um þær eða hverja einstaka af þeim, en vona að hv. deild geti fallist á þær.
Loks er 13. brtt. viðaukatillaga við 73. gr. frv. Þar er farið fram á, að ákveðið sje, að landskosningarúrslitin verði birt í B-deild Stjórnartíðindanna, eins og kjördæmakosningaúrslitin. Þetta virðist sjálfsagt, og vonandi að háttv. deild fallist á það.
Á. þgskj. 132 ber nefndin fram tillögu um, að í staðinn fyrir „konungur ákveður“ komi „stjórnarráðið ákveður“. Þetta er varúðartillaga, vegna stríðsins. Því hugsanlegt er, að símasamband og önnur sambönd við Danmörku verði slitin, þegar ákveða þyrfti kjördag. Og telur nefndin því rjett, að heimila stjórnarráðinu að gjöra það innan hinna ákveðnu takmarka.
Þá er brtt. sú, sem jeg flyt ásamt hv. þm. Húnv. (G. Ó.) og prentuð er á þgskj. 181. Við berum hana fram af því, að við teljum óheppilegt, ekki síst í fyrsta skifti, að landskosningin fari fram að vetrarlagi, því þá gæti vel svo farið, óveðurs vegna og ófærðar, að örfáir í sveitum geti notað rjett sinn; yrðu það þá kaupstaðir og kauptún landsins, er rjeðu kosningunni að mestu eða öllu. Teljum við illt og órjettlátt, ef svo yrði, því til þess er rjetturinn aukinn, að menn geti notað hann allir jafnt. Annars er rjettaraukinn nafnið tómt.
Til þess nú, að allir standi sem jafnast að vígi með að nota kosningarrjett sinn, leggjum við til, að lands- og kjördæmakosningar fari fram sama dag, og ekki fyrr en í júní. Með því móti er að öllu sjálfráðu komið í veg fyrir það, að veður og færi hamli mönnum frá að neyta rjettar síns, og enn fremur er þeim, sem lengst eiga að kjörstað, gjörður kostur á að fara þangað í eitt skifti fyrir tvö — „slá tvær flugur í einu höggi“. Þetta er mjög mikilsvert fyrir kjósendur, og hluttaka í landskosningunum mundi verða mjög almennari en ella, með þessum hætti. Þarf ekki að færa frekari rök að þessu, því það liggur í augum uppi.
Jeg býst við þeirri mótbáru, að með þessum hætti verði þeir, sem verða í landskjöri, útilokaðir frá því, að bjóða sig fram í kjördæmi, ef þeir falla: Þetta er satt. En jeg tel það skaðlaust. Nógir munu vilja komast á þing, ef að vanda lætur. Og nú er úr fleirum að velja en áður. Einskis rjettur er fyrir borð borinn með þessu, því allir eiga þar frjálst val. Og þegar um það er að ræða, hvors rjett eigi fremur að tryggja, þingmannsefnis til að ná í þingsetu, eða kjósenda til að neyta kosningarrjettar síns, þá blandast. mjer ekki hugur um það, að rjettur kjósenda á að ganga fyrir.
Önnur ástæða, er jeg býst við gegn þessu, er sú, að örðugra verði að fá góða menn á landslista, ef þeir eru um leið og þeir komast á hann útilokaðir frá því að bjóða sig fram í kjördæmi. Til þess er því að svara, að það mun hafa sýnt sig strax í haust, þegar umræða varð um landskjörið, að ærin þröng var þá fyrir dyrum landslistanna. Og allar líkur eru til, að svo verði framvegis, eins og jeg hefi bent á. En auk þess er engin vissa fyrir því, að einmitt bestu mennirnir sjeu ákafastir að komast á þing. Allt eins líklegt er hitt, að ýmsir hinna betri manna vilji komast á landslistana, en ekki bjóða sig í kjördæmum. Og vera má, að þinginu væri ekki minni fengur í slíkum mönnum en ýmsum öðrum, sem alstaðar vilja troða sjer fram.
Jeg fæ því ekki betur sjeð, en að tillagan sje sanngjörn og rjettmæt og vona, að háttv. deild sjái það og samþykki.