11.09.1915
Efri deild: 58. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 649 í B-deild Alþingistíðinda. (710)

3. mál, kosningar til Alþingis

Ráðherra:

Jeg verð að draga það í efa, að það sje rjett hjá hv. þm. Seyðf. (K. F.), að ekki sje hægt að undirbúa kjörskrárnar, þótt að stjórnarskráin sje ekki komin til fullrar framkvæmdar. Jeg hygg að það sje víst, að undirbúningur undir þær, megi fyrr fara fram, og að það sjeu engin rjettarspjöll. Þyrði jeg óhræddur að taka þá ábyrgð á mig.