13.09.1915
Efri deild: 59. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 177 í B-deild Alþingistíðinda. (72)

108. mál, fjárlög 1916 og 1917

Jón Þorkelsson :

Jeg veit ekki hvað háttv. framsm. fjárlaganefndarinnar getur haft á móti tilfærslunni á þgskj. 671. Get jeg ekki sjeð að það spilli neinu frá því, sem nú er.

Jeg býst við að háttv. framsögumaður hafi ekki athugað það, að til stendur að auka vinnutímann við safnið og hafa það jafnlengi opið daglega og Landsbókasafnið, þ. e. 6 stundir á dag. Af þessari ástæðu er það, að jeg hefi lagt til að maðurinn fái jafnmikil laun og 1. aðstoðarbókavörður í Landsbókasafninu. Því eins og menn menn sjá, er alsendis ósanngjarnt að starfstíminn sje lengdur, án þess að launin hækki að sama skapi. Annars ætla jeg ekki að þjarka frekar um þetta, en ber það traust til háttv. deildar, að hún taki þessa sanngjörnu kröfu til greina.