20.08.1915
Efri deild: 38. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 657 í B-deild Alþingistíðinda. (723)

92. mál, fasteignamat

Kristinn Daníelsson :

Jeg get ekki neitað því, að jeg hefi verið í vafa um, hvernig jeg ætti að snúa mjer gegn þessu frumvarpi, því að mjer finst, að við það sje ýmislegt að athuga. Jeg býst við, að kostnaðurinn við það verði mjög mikill, og væri æskilegt, að nákvæmari upplýsingar væru fyrir hendi um, hvað mikill hann mundi verða. Hann mun samt ekki fæla mig ,frá að greiða atkvæði með frv., því að mjer dylst ekki, að mjög mikil nauðsyn er á að fá nýtt jarðamat. En það er annað sem mér finst sjerstaklega athugavert við frv., og það er ákvæðið um að jarðamat skuli framvegis fara fram 10. hvert ár, með þessum sama, mikla kostnaði. En ef hátt. deild þykir þetta athugavert, má, koma fram með breytingartillögu við 3.

Þá er enn eitt atriði. Jeg efa hvort frv. hefir tekið bótum, með því að bæta inn í það ákvæðinu um, að ekki skuli, að eins virða jarðeignir, heldur einnig húseignir, því þar sem jarðamat getur staðið lengur en 10 ár, án þess að því þurfi að breyta, þá stendur öðruvísi á með mat á húseignum. Húseignunum fjölgar stöðugt og þær verður að meta, og eru samkvæmt öðrum gildandi fyrirmælum metnar jafnóðum. Jeg held því, að rjéttara hefði verið, að hlíta við þau fyrirmæli, en setja hjer einungis lög um mat á jörðum.

Breytingartillögur nefndarinnar eru eðlilegar, ef taka á upp í lögin ákvæði um húsavirðingar, og það þykir mjer hæfilegt, að 150 kr. virði í jörðum sje lagt á móti einu hundraði á landsvísu, að því er kemur til skatts, og get jeg því greitt atkvæði með þeirri brtt. Mun jeg greiða atkvæði með frv., en áskil mjer, ef til vill, að koma fram með brtt. við 3. umr.