20.08.1915
Efri deild: 38. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 662 í B-deild Alþingistíðinda. (730)
92. mál, fasteignamat
Framsm. (Eiríkur Briem):
Fyrirspurn háttv. þm. Barð. (H. K.) vil jeg svara því, að það stendur að meta skuli öll hús. Þau eru metin til þess að vita hvað eignin er mikil. En það getur ekki komið til mála, að leggja þau við verð jarðarinnar, ef ábúandi eða einhver annar en jarðeigandi á þau.
Ítök verður að meta eftir því, hve hæfilegt er að leigja þau eða selja. Ef svo erfitt er að nota þau, að það borgar sig ekki, eða það er ómögulegt, þá eru þau ónýt, og verða þá að engu metin. Það er eins og t. d. með skógarítök, þar sem enginn skógur er. Sama er með ítök, sem eru orðin ónýt, af því að kringumstæðurnar hafa breytst með tímanum. (Hákon Kristófersson: En ef verðmætisleysið stafar af legu þeirra ?) Það er sama, ef þeir, sem land eiga að, vilja ekkert gefa fyrir það, þá eru þau verðlaus. Matsmenn geta ekki metið til verðs það, sem hvorki er hægt að leigja nje selja eða hafa nokkurt gagn af.