14.09.1915
Efri deild: 61. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 681 í B-deild Alþingistíðinda. (770)
150. mál, bráðabirgðaverðhækkunartollur
Framsm. (Björn Þorláksson):
Það eru einstaka atriði í ræðu hv. þm. Barð. (H. K.), sem jeg ætla að gjöra aths. við. Hann virtist vera á móti tollhækkun á sjávarafurðum, og færði þá ástæðu fyrir því, að tollur væri á þeim fyrir; en þessi beini tollur er svo lágur, að fyrir þá sök er engin ástæða til að fella þetta frv. Hann er ekki nema 32 aurar á skpd. Jeg játa að þessi tollur verður nú um 1 kr. á skpd. með því verði, sem nú er á fiski, en lækkar að sama skapi og fisk: verðið lækkar.
Þá spurði hv. þm. Barð. (H. K.), hvers vegna svona tollur hefði ekki verið lagður á áður. Orsökin er sú, að íslenskar afurðir hafa aldrei verið í jafn háu verði sem nú, og aldrei því þolað eins vel og nú lítinn toll. Þetta gildir jafnt land og sjávarafurðir.
Þá spurði hann, hvers vegna málið væri svona seint á ferðinni. Því ætla jeg ekki að svara; jeg ber enga ábyrgð á því og deildni ekki heldur, en það gengur oft svo, að menn eru seinir á sjer. En það er þó betra að sjá seint en aldrei það, sem til bóta má verða.
Þá átaldi hv. þm. aðferðina, sem notuð hefði verið til þess að koma þessu máli fram. Jeg veit ekki til, að aðferðin hafi verið þannig, að það þurfi að vera nokkur ástæða til aðfinslu. Menn hafa sjálfsagt borið sig saman í flokkunum, og það álít jeg heppilega aðferð, því að það hefir gengið töluvert erfiðlega að fá menn til að sameina sig um það.
Þá áleit hv. þm. ekki þörf á frv., því hann kvaðst líta svo á tekjuhallann, að ekki væri mikil ástæða til að bæta úr honum. Þetta rökstuddi hann með því, að það hefði oft áður verið jafnmikill tekjuhalli: Það er satt, að áður, að minsta kosti tvisvar, hefir verið svona hár tekjuhalli, en fyrir það er engin ástæða til, sem rjettlætir þau orð, að þetta mál sje þarfleysa. Eða eigum við að vera jafn óforsjálir og áður og skilja við þingið með svo miklum tekjuhalla, að engin ráð sjeu til að bæta úr honum ? Við megum ekki einlægt treysta því, að tekjurnar fari langt fram úr áætlun.
Loks mintist hann á brtt. þá, er fram kom í nefndinni, og jeg gat líka um í framsögu minni, og sagðist hann frekar geta gengið með frv., ef brtt. yrði samþ. Hann sagði enn fremur út af þeim ummælum mínum, að hún gæti orðið frv. að falli, að þau væru ekki rjett. Frumv. gæti gengið til Nd. og komið aftur í tíma. Jeg meinti ekki að það væri ómögulegt samkvæmt þingsköpunum, en flokkarnir í þinginu hafa verið að bræða sig saman um að leggja jafnan toll á allar afurðir, sem fara yfir víst verð. Ef þessu yrði raskað og tollurinn á sumum vörum færður úr 3% niður í 1%, óttast jeg að samkomulagið fari út um þúfur og frv. geti fallið. Fleira hefi jeg ekki að athuga við ræðu hv. þm. Barð. (H. K.).