14.09.1915
Efri deild: 61. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 695 í B-deild Alþingistíðinda. (777)
150. mál, bráðabirgðaverðhækkunartollur
Hákon Kristófersson:
Tilefnin til þess, að jeg stend upp, eru niðurlagsorðin í ræðu hv. 2. kgk. þm. (Stgr. J.). Mjer virtist hann bendla mig við það, að jeg færi enn með slúðursögur utan af götunni í ræðum mínum. Þessum ummælum háttv. þm. vil jeg beina heim aftur, þangað sem þau eru frá komin. Það vill svo vel til, að jeg sjálfur var boðaður á þenna umrædda fund og veit full vel hvað þar fór fram. (Karl Einarsson : Hverjir voru á þessum fundi?). Á fundinum var meiri hl. allra þingmanna. (Karl Einarsson: Voru það margir úr þessari deild?). Því er jeg ekki skyldur að svara. (Forseti: Jeg verð að biðja háttv. þm. að lengja ekki umræður um þetta efni). Jeg vona að hæstv. forseti hafi ekki neina ástæðu til þess, að setja ofan í við mig eða taka af mjer orðið. En það, sem jeg vildi sagt hafa, var það, að hv. 2. kgk. þm. (Stgr. J.) hefir litla ástæðu til þess að segja mig fara með slúður nú, og ræð jeg honum til að ganga fyrir hvern mann hjer í þinginu og spyrja hann, og mun hann þá. komast að raun um, hverjir á fundinum hafa verið.