14.09.1915
Efri deild: 61. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 696 í B-deild Alþingistíðinda. (778)
150. mál, bráðabirgðaverðhækkunartollur
Karl Finnbogason:
Hv. þm. Vestm. (K. E.) minti mig á það, að jeg ætti að greiða atkv. um þetta mál. Þess þurfti nú raunar ekki. Mjer var það full ljóst. Jeg tek þessi ummæli hv. þm. sem áminningu um það, að jeg eigi að vera vörður Austfirðinga í þessu máli, að því er fiskinn snertir, og að það sje Labradorfiskurinn, sem liggur þar undir steini.
Jeg er hv. þm. Vestm. (K. E.) sammála. um það, að verðið, sem ákveðið er á honum (Labradorfiskinum) í 3. gr., sje of lágt samanborið við ýsuverðið, og mætti laga það við 3. umr. málsins.
Þó álit jeg breytingar á frv. varhugaverðar, ekki fyrir það, að jeg sje ánægður með það í alla staði, heldur fyrir það, að jeg óttast, að þær geti orðið því að. falli. Og jeg vil ekki að frv. þetta falli.
Það er hyggilegt að auka tekjur landsins, ef auðgjört er með góðu móti. Og ekki veit jeg, hvað sanngjarnt er að leggja skatt á, ef ekki gróða þann, sem ekkert er haft fyrir af þeim, sem nýtur, eins og hjer er um að ræða.
Jeg er einn þeirra manna, sem álit heppilegast og heillavænlegast að afla landssjóði sem mest fjár, auðvitað með skynsamlegum hætti og rjettlátum, og nota fjeð hiklaust til nauðsynja landsins. Svo nefndur sparnaður er oft hin mesta eyðsla. Að spara botnlaust og vitlaust öll útgjöld og álögur, miðar að því, að kreppa þjóðina í sjálfheldu og kyrkja allan þroska, framfarir og framkvæmdir. Þess vegna eru mestu sparnaðarpostularnir oftast Þrándar í Götu þroska og framfara. Þeir, sem tala mest um sparnað, bæði í tíma og ótíma, eru oft ákafastir að ná fje úr landssjóði til sinna hjeraða. Slíkir menn eru til á þingi nú, og ættu allir að þekkja. Allir þeir menn eru eitur í mínum beinum, og ættu að vera eitur í allra manna beinum.
Ekki meina jeg þetta til hv. þm. Vestm. (K. E.), þótt jeg sje mótfallinn brtt. hans, eða rjettara nefndarinnar, sem hann mælti að nokkru fyrir.
En brtt. er jeg mótfallinn, vegna þess, að jeg er sannfærður um, að samþykt þeirra yrði frv. að falli. Mjer er kunnugt um aðdraganda málsins og undirbúning, og veit því, að einmitt þessi breyting yrði — aldrei samþykt í háttv. Nd. (Karl Einarsson: Þetta er misskilningur). Það getur nú alveg eins verið misskilningur að segja, að þetta sje misskilningur. Og svo álít jeg að sje.
Frumv. er allvel úr garði gjört, eftir atvikum. Og málið þolir ekki bið. Jeg muni því greiða atkvæði móti brtt. en með frumvarpinu.
Fyrst óáttv. þm. Vestm. (K. E.) er að taka fram í fyrir mjer og rugla mál mitt, vil jeg geta þess, að mjer þykir ekkert undarlegt nje ámælisvert, þótt hann beri hag Vestmannaeyinga fyrir brjósti í þessu sem öðru. Þeir mundu verða að greiða talsverðan skatt af fiski sínum, ef frv. þetta verður að lögum. En sá skattur gæti ekki orðið tilfinnanlegur, eftir því sem um er búið. Og benda vil jeg háttv. þm. á það, að Vestmannaeyjar fara ekki varhluta af landssjóðsfje á næsta fjárhagstímabili, því þingið hefir verið þeim mjög innan handar. Er því alls ekki ósanngjarnt, að eitthvað komi í mót.