14.09.1915
Efri deild: 61. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 698 í B-deild Alþingistíðinda. (779)

150. mál, bráðabirgðaverðhækkunartollur

Jósef Björnsson:

Háttv. þm. Vestm. (K. E.) sagði, að ræða mín í þessu máli hefði ekki verið annað en neyðarrolla fyrir bændur. Líti hann svo á, þá lít jeg svo á, að ræða hans hafi verið enn átakanlegri neyðarrolla fyrir sjómenn. Jeg bendi honum á, að þessi lög ná ekki yfir meiri hlutann af afurðum útvegsmannanna á þessu ári, því þeir eru búnir að flytja megnið út. En aftur á móti eru afurðir bændanna enn í landinu því nær allar, og hljóta lögin því að ná til þeirra, svo að því leyti verða þeir harðara úti. Það eina, sem búið er að selja út úr landinu af landafurðum, er ullin, og ekki alveg víst, að hún sje öll seld enn, en þó svo væri, er hún ekki nema lítill hluti afurða bóndans.