14.09.1915
Efri deild: 62. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 699 í B-deild Alþingistíðinda. (782)
150. mál, bráðabirgðaverðhækkunartollur
Karl Finnbogason :
Jeg flyt litla brtt. við frv. Það kemur af því, að jeg tel verðið á Labradorfiskinum of lágt sett á móti ýsu. Í fyrra var líkt verð á þessum fiski og ýsu, og í ár er það hærra. Í frv. er gjörður 10 kr. munur á hverjum 100 kg. af þessum vörum, en það er alt of mikið. Jeg vil enn fremur benda á það, að þessi tegund fiskjar fellur aðallega í skaut hinna fátæku, þeirra, er hafa litla útgjörð, og er það óheppilegt, að skatturinn verði þyngri á þeim, og kemur illa niður.
Þessi breyting er engin gjörbreyting á frv., að eins smá lagfæring, svo jeg vona að hv. deild geti fallist á hana, því engin ástæða er til að ætla, að hún verði frv. að falli í hv. Nd., enda kýs jeg heldur að breyting þessi falli en frv., þó bót sje að henni.