14.09.1915
Efri deild: 62. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 700 í B-deild Alþingistíðinda. (784)
150. mál, bráðabirgðaverðhækkunartollur
Karl Finnbogason:
Því var haldið fram, um brtt. þá, er jeg flutti í gær við frv., að það væri hætta á að samþ. hana, af því hún gjörbreytti frv. Þessi brtt. gjörir það ekki, og því tel jeg enga hættu á að samþ. hana. Jeg ber fullkomið traust til hv. Nd. um það efni, en annars er mjer þetta ekkert kappsmál.
Jeg hefi fyrir satt, að frv. hafi verið samþ. í hv. Nd. með 20 atkv., og þá ætti þessi smábreyting því síður að hafa áhrif, því hún skifti svo litlu fyrir málið í heild sinni. Jeg vil því ekki taka till. aftur.