19.08.1915
Efri deild: 37. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 189 í B-deild Alþingistíðinda. (80)

56. mál, fjáraukalög 1914 og 1915

Hákon Kristófersson:

Um breytingartillögu mína á þgskj. 397 vil jeg taka fram, að jeg vil taka hana aftur, með því að síðari tillaga fjárlaganefndarinnar á þgskj. 434 er hin sama að efni til.

Úr því jeg stóð upp, þá vil jeg taka undir ummæli háttv. 6. kgk. þm. (J. Þ.) um uppbót til smíða þeirra, er smíðuðu pósthúsið. Mjer þykir það harla kynlegt, hvernig hin háttvirta nefnd hefir getað komist að þessari niðurstöðu sinni. Það má þó öllum ljóst vera, að miklu er örðugra nú að fá efni, og fá það flutt, en áður en stríðið hófst, og að verð þess er alt annað en áður var. Það er því ljóst, að samningarnir um bygginguna eru gjörðir á alt öðrum grundvelli en þeim, er varð, er til byggingar kom, því samningarnir voru gjörðir fyrir dýrtíðina, en byggingin meðan á dýrtíðinni stóð. Mjer finst því, frá sanngirnislegu sjónarmiði sjeð, skylt að taka beiðni smiðanna til greina, og eigi hvað síst, er þess er gætt, að tilboð þeirra var lágt, svo að munaði tugum þúsunda frá því, er annars var kostur á, og verkið vel af hendi leyst.

Mjer þykir það leitt, ef taka verður til þeirra ráða, að hækka gjaldið fyrir sjúklingana á Vífilsstöðum. Jeg efa það mikillega, að þetta sje heppilegasta leiðin til bæta tekjuhalla hælisins, þótt mikill sje að vísu og nauðsyn að minki. Jeg hygg, að þessi hækkun geti hæglega leitt til þess, að margir þeir, sem sjúkir eru og nauðsynlega þyrftu að fara á hælið, geti það eigi vegna fjárskorts. Og afleiðingin af því er sú, að þeir væru neyddir til þess að sitja kyrir heima, og gæti það af því leitt fyrir þjóðfjelagið, sem margfalt er verra en það, þó nokkrum þúsundum kr. væri meir varið til Vífilstaðahælisins frá landssjóðs hálfu. Það er verra fyrir sjúklingana sjálfa, getur kostað mörg mannslíf og sýkt marga.

Jeg get verið með því, að gjaldið væri eitthvað hækkað, en hjer er of langt farið Hækkunin nemur 50 aurum á degi hverjum og verður þá alt gjaldið (að við bættu því, sem nú er greitt) 2 kr. á dag eða 60 kr. um mánuðinn, og tel jeg víst að það verði mörgum fátækum manni ofvaxið að kljúfa þann kostnað, þó hann þyrfti þess.

Hvað. brtt. nefndarinnar um Sláturfjelagið snertir, þá er jeg þakklátur fyrir hana og greiði henni fúslega atkvæði. Jeg veit það með vissu, að ef þessi tillaga verður samþykt, þá koma fleiri jafn rjettháar og sams konar beiðnir til þingsins, sem það þá yrði að sinna, ef rjett væri að farið. Jeg veit að verslanir á Vesturlandi hafa flutt aftur til landsins kjöt, sem þær höfðu flutt út, og þær hafa sama rjett til endurgreiðslu á tolli og Sláturfjelag Suðurlands.

Jeg mun aðhyllast tillögu fjárlaganefndarinnar um eftirlaun Skúla Thoroddsens. deg sje mjer og eigi fært að greiða atkv. með tillögu háttv. 6. kgk. þm. (J. Þ.) um tjeð efni, því jeg tel ella Skúli Thoroddsen hefði átt og að grenslast fyrir um þessi mál, og megi því æ að nokkru sjer sjálfum um kenna.

Vegna þess, að sjerstaklega stendur á um upphæðina til Jóns heit. yfirdómara Jenssonar, mun jeg ljá henni atkvæði mitt. en eigi má þetta með neinu móti skoðast sem fordæmi fyrir stjórnina á komandi tíð.