14.09.1915
Efri deild: 61. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 712 í B-deild Alþingistíðinda. (802)

109. mál, skipun dýralækna

Kristinn Daníelsson:

Mjer fanst brtt. mín nauðsynleg til lagfæringar, því jeg: sje ekki, að hjer sje um breytingu að ræða á eldri lögum, enda bendir fyrirsögn frv., eins og hún er nú orðuð, ekki í þá átt. Þar stendur berum orðum frumvarp til laga um dýralækna, en ekki frv. til lága um. breytingu á lögum um dýralækna. En, líklega hefir það vakað fyrir háttv. nefnd, að upphaflega var fyrirsögnin orðuð svo, að það væri breyting á dýralæknalögunum, og eftir því hafi hún sniðið brtt sína. Jeg játa það, að það getur valdið nokkrum ruglingi um dýralæknana í Vestfirðingafjórðungi og Austfirðingafjórðungi, hve nær þá skuli skipa, eins og greinin er orðuð í frv., en brtt. skýrir það, og það engu síður þótt mín komist að. Aftur á móti getur enginn vafi leikið á með þá dýralækna, sem nú sitja í embættum, því að hvorki kemur til mála, að ætlast sje til, að stjórnin skipi þá af nýju, nje setji þá af og skipa aðra í þeirra stað. Jeg gjöri annars þessa brtt. mína ekki að neinu kappsmáli, en vil þó gefa deildinni kost á að greiða atkvæði um hana, og get því ekki orðið við tilmælum háttv. 5. kgk. þm. (G. B.) um að taka hana aftur.

Þar sem háttv. 5. kgk. þm. (G. B.) tók það fram, að sama orðalag væri á brtt. nefndarinnar, eins og venja væri að hafa í lögum um stofnun nýrra læknahjeraða, þá er þar nokkru öðru máli að gegna, því að þar er beint tekið fram, að hin nýju lög sjeu breyting á eldri læknaskipunarlögum.