05.08.1915
Efri deild: 24. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 724 í B-deild Alþingistíðinda. (833)

83. mál, Bjarghús í Þverárhreppi

Flutnm. (Guðmundur Ólafsson):

Það er rjett hjá háttv. 2. kgk. þm. (Stgr. J.), að þetta er ekki nema heimild. Ábúandi þarf þá ekki að toga fram álit umráðamanns, og á þá um það við stjórnarráðið en aðra ekki, hvort hann fái jörðina keypta. (Steingrímur Jónsson: Ekki heimildarlög, heldur skipunarlög). Það er að eins heimild. Stjórnarráðið lætur þá meta jörðina og ræður svo, þegar allar upplýsingar eru komnar, hvort það selur jörðina eða ekki. Jeg held það sje sjerstök hótfyndni, að vilja ekki lofa nefnd að athuga frv.