07.08.1915
Efri deild: 26. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 725 í B-deild Alþingistíðinda. (837)

90. mál, forðagæsla

Flutnm. (Björn Þorláksson):

Svo sem háttv. deildarmönnum er kunnugt, ná forðagæslulögin frá 1913 að eins til sveitafjelaga, en ekki til bæjafjelaga. Jeg veit ekki, hvort þetta hefir komið til af gleymsku, eða af því, að menn hafa haldið, að bæirnir þyrftu ekkert eftirlit í þessu efni: Það er þó kunnugt, að talsvert er til af ganganda fje í öllum kaupstöðum, bæði kýr, hestar og sauðfje. Kaupstaðarmenn þurfa því, ekki síður en sveitamenn, að hafa fyrirhyggju, þegar þeir setja á á haustin, því annars er ekki loku skotið fyrir, að fóðurskortur og horfellir geti orðið í kaupstöðunum, ekki síður en í sveitunum.

Hjer á landi eru nú þrenn lög í gildi, sem öll miða í þá átt að tryggja landslýðinn gegn harðindum. Þessi lög eru forðagæslulögin, bjargráðalögin og lögin um kornforðabúr. Tvö hin síðan nefndum ná til alls landsins, kaupstaðanna líka, en forðagæslulögin að eins til sveitanna. Að minni hyggju er ekkert vit í þessu. Jeg þekki best til í Seyðisfjarðarkaupstað, og það veit jeg, að þar væri engin vanþörf á forðagæslu. Þar er það alsiða, að menn setja á ekkert, nema von um hey úr næstu sveit, og þarf ekki mörgum orðum um það að fara, hvað stórbagalegt þetta getur orðið fyrir sveitina. Kaupstaðurinn getur á þenna hátt gjört sveitina ófæra því að bændur geta oft ekki fengið af sjer að neita um hey, þegar kunningjar þeirra í kaupstaðnum eru í hraki. Þannig er þetta í Seyðisfjarðarkaupstað, og get jeg ímyndað mjer, að líkt eigi sjer stað annarsstaðar.

Svo sem mönnum er kunnugt, hefir komið fram frv. í háttv. Nd., um að afnema forðagæslulögin með öllu: Það frv. var tekið aftur, en hins vegar skorað á stjórnina, að leita álits allra hreppsnefnda á landinu um forðagæslulögin. Það er því víst, að lögin verða í gildi næstu tvö ár, og virðist því sjálfsagt að gjöra þá umbót á þeim, sem frv. þetta fer fram á: Annars finst mjer mál þetta svo ljóst, að jeg tel óþarfa að skipa nefnd í það, og læt jeg mjer því nægja að óska þess, að háttv. deild vísi því til 2. umr.