27.08.1915
Efri deild: 44. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 736 í B-deild Alþingistíðinda. (853)

122. mál, upptaka legkaups

Flutnm. (Björn Þorláksson):

Jeg ætla mjer að eins að segja örfá orð.

Hv. 2. þm. Skagf. (J. B.) bar á móti því, að jeg hefði hermt það rjett, að áætlun milliþinganefndarinnar í skattamálum hefði ekki reynst rjett. En jeg get fullyrt, að jeg þekki fleiri kirkjur, sem hafa skaðast við að 75 aura sóknargjald var tekið upp fyrir allar hinar margvíslegu tekjur kirkjunnar, þótt aðrar kunni að hafa haft nokkurn tekjuauka af því. Hinn sami háttv. þm. spurði, hvort jeg vildi taka bendingu sína viðvíkjandi bændakirkjunum til greina, og get jeg svarað því svo, að jeg er fús á að bera mig saman við hann og aðra góða menn um það atriði, ef þess verður kostur.

Mjer þótti kenna ekki alllítilla öfga í ræðu 5. kgk. (G. B.). Honum þótti óhæfilegt að taka upp legkaup um land alt og talaði um, að hjer væri verið að gjöra leiði látinna manna að fjeþúfu. Þetta er nú ekki vel til fundið, því að hjer ræðir auðvitað um skatt á lifandi mönnum en ekki dauðum. Legkaup hefir tíðkast hjer á landi frá hinni fyrstu kristni og aldrei verið óvinsælt gjald. Það er víst fyrst í dag, að það hefir heyrst, að með því væru leiði dauðra manna höfð að fjeþúfu eða gjörð að gjaldstofni. Hann sagði og, að ef Reykvíkingar yrðu nú fyrir ójöfnuði, þá væri ekki bætt úr skák með því, að sýna fleirum ójöfnuð. Hinn háttv. þm. hefir misskilið eða rangfært orð mín. Jeg sagði ekki, að það væri rangt að Reykvíkingar borguðu legkaup, en hitt sagði jeg, að það væri misrjetti, ef sú skylda ætti að hvíla á þeim einum, en allir aðrir að sleppa við það.