30.08.1915
Efri deild: 46. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 748 í B-deild Alþingistíðinda. (865)
122. mál, upptaka legkaups
Karl Finnbogason :
Jeg vil að eins árjetta það, sem jeg sagði áður um það, að rjettara sje, að legkaupið sje greitt þar, sem maðurinn er grafinn, en þar sem hann hann andast. Jeg vil t. d. benda á, að fjöldi manna deyr á Vífilstaðahælinu og mikið af líkunum er flutt þaðan, jafnvel langleiðis, og grafið að annari kirkju. Svo er víðar, einkum þar, sem sjúkrahús eru. Það er því ekki lítils vert atriði, að legkaup sje goldið þar, sem maðurinn er grafinn. Og þó að það væri tiltölulega mjög sjaldgæft, að maður sje grafinn annarsstaðar en hann deyr, þá er þó miklu eðlilegra, að legkaupið sje jafnan goldið til greftrunarstaðarins, því annars er vikið af grundvelli laganna, alveg að ástæðulausu.