07.08.1915
Efri deild: 26. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 754 í B-deild Alþingistíðinda. (872)
39. mál, fátækralög
Karl Finnbogason :
Jeg er sammála. háttv. framsm. (H. K.) og nefndinni, að mikil þörf er á, að afnema þá agnúa, sem óneitanlega eru á núgildandi fátækralöggjöf. Fæðingarhreppur er nú skyldur til þess, að sjá fyrir ósjálfbjarga börnum ósjálfbjarga foreldra. Þetta er ekki nema eðlilegt og óhjákvæmilegt, fyrst nokkur framfærsluskylda sveitafjelaga er til. Hitt er ósanngjarnt, að þeir, sem t. d. fyrst eru aldir upp á hrepp, en dvelja síðan alla æfi annarsstaðar en í fæðingarhreppnum, geti aftur komist á fæðingarhrepp sinn sem örvasa gamalmenni, þó að þeir á bestu árum sínum hafi aldrei unnið þar eitt einasta handtak. Um þetta er jeg sammála nefndinni, en hitt get jeg ekki fallist á, að brtt. hennar sjeu til bóta. Jeg álít þvert á móti, að ákvæði frumvarpsins um, að maður skuli eiga sveit þar, sem hann hefir dvalið lengst samtals, eftir að hann komst til fullorðins ára, sje mjög heppilegt. Því fyrst viðurkent er, að rjett sje, að maður vinni sjer hrepp, þá er ekkert sjálfsagðara en það, að maðurinn vinni sjer framfærslurjettinn þar, sem hann starfar lengst og gjörir mest gagn. Og engu máli skiftir það, hvort maðurinn vinnur samfleytt í hreppnum eða ekki. Samtals er aðalatriðið. Auðvitað mætti segja, að í raun og veru hvíldi framfærsluskyldan á öllum hreppum, þar sem maðurinn hefir unnið. En það mundi ekki auðgjört, að koma slíku ákvæði í framkvæmd, og hygg . jeg því, að næst hinu rjettasta verði komist með því að ákveða, að þar eigi maður framfærsluhrepp, sem hann hefir dvalið lengst samtals. Nefndin vill binda sveitfestutíman við 5 ára dvöl í hreppnum samfleytt. Það tel jeg óheppilegt, og engu betra, nema verra sje, en 10 ár. Það er t. d. hægt að hugsa sjer, að maður hafi á aldrinum frá 16 til 65 ára dvalið í 10 hreppum, 5 ár í 9 þeirra, en 4 ár í einum. Er það nú sanngjarnt, að hann skuli sveitlægur þar, sem hann dvaldi síðast í 5 ár, t. d. árin frá 60–65, þegar maðurinn var orðinn ófærastur til starfs? Jeg segi nei; þetta ákvæði er því alveg út í bláinn. Líka má gjöra ráð fyrir, að maður hafi dvalið t. d. 32 ár í sama hreppi, en ekki samtleytt, heldur 8 sinnum, 4 ár í hvert skifti. Finst mönnum sanngjarnt, að þessi maður sje sveitlægur í hreppi, þar sem hann hefir dvalið að eins í 5 ár? Þá hefir verið stungið upp á því, að maður skyldi vinna sjer sveit, þar sem hann fyrst verður þurfamaður. Ekki get jeg heldur sjeð, að nein sanngirni sje í þeirri hugsun. Ef slíkt ákvæði kæmist inn í lögin, mundi tilviljunin ein ráða um sveitfesti manna.
Loks vil jeg benda á eitt atriði þessa máls, sem mjer finst ekki lítils vert. Öllum er kunnugt, hvílíkt kapp margar sveitastjórnir hafa lagt á að hrekja burt fátæklinga, áður en þeir yrðu sveitlægir. Það er hart, að slíkt skuli hafa verið og ef til vill vera alsiða, að sparka mönnum burt, þegar að þeim fer að kreppa, þótt þeir hafi árum saman dvalið í hreppnum og unnið í sveita síns andlitis. En því skemri, sem sá tími er, sem þarf til þess, að menn vinni sjer sveit, því oftar munu sveitastjórnir hafa ástæðu til að grípa til slíkra úrræða. Vegna alls þess, sem jeg nú hefi nefnt; er mjer ómögulegt að fallast á brtt. háttv. nefndar, og þykir mjer undarlegt, að að háttv. flutningsm. og framsm. (H. K.) skuli hafa getað fengið af sjer að ljá samþykki sitt til, að frv. hans yrði spilt svo mjög, sem raun hefir á orðið.