07.08.1915
Efri deild: 26. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 759 í B-deild Alþingistíðinda. (876)

39. mál, fátækralög

Sigurður Stefánsson:

Jeg ætla ekki að vera langorður. Jeg er á sama máli og háttv. 2. kgk. þm. (Stgr. J.), að betra hefði verið, að frv. þetta hefði ekki komið fram, og jeg er á móti þessum breytingum á lögum þessum, þar eð engar óskir hafa komið fram í þá átt, og jeg tel mjög óvíst, að þær sjeu til batnaðar.

Þessi ákvæði í fátækralögunum standa í nánu sambandi við hag sveitasjóðanna, og ef 10 ára sveitfestistíminn væri svo óvinsæll, að hann þætti ranglátur, væru vafalaust komnar fram óskir um breytingu á honum. Og mjer finst engin þörf knýja til þessarar breytingar, og alls ekki rjelt af þinginu að breyta þeim, meðan engar almennar óskir koma fram um það. Hjer er um vandaatriði að ræða. Ef breyta hefði átt lögunum á annað borð, hefði jeg helst greitt atkvæði með frv. eins og það upphaflega kom fram, og þó jeg sjái agnúa á 10 ára sveitfestistímanum, þá frekar vaxa þeir en minka við breytinguna, og vafasamt, hvort sveitastjórnir verða ánægðari eftir en áður. Jeg held að ekki sje heppilegt að breyta til. Við höfum haft fimm ára sveitfestistíma; var hann að eins í lögum ein 8 ár, og menn voru alment óánægðir með hann. Að vísu var nokkuð annað fyrirkomulag þá, en breytingar eru óheppilegar þar, sem þeirra er ekki þörf. Heppilegra mun vera að láta vera það, sem er, enda er erfitt fyrir sveitastjórnirnar, ef alt af er verið að breyta til.

Það er gjörsamlega hárrjett hjá hv. 2. kgk. þm. (Stgr. J.), að erfitt er að segja í þessu máli, hvað rjettast er, og því ekki rjett af þinginu að vera að breyta til, fyrren þörf krefur. Jeg vil því helst hafa allt eins og er um þetta mál.