07.08.1915
Efri deild: 26. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 760 í B-deild Alþingistíðinda. (877)

39. mál, fátækralög

Björn Þorláksson:

Jeg ætla að eins. að gjöra grein fyrir atkvæði mínu.

Jeg get fallist á brtt. við frv. Mjer finst,. að breytingin frá gildandi lögum sje aðallega sú, að sveitfestistíminn er færður úr 10 árum ofan í 5 ár, og er sú breyting eðlileg, þegar þess er gætt, að nú dvelja menn yfirleitt skemur í sama stað en áður var.

Þó að ekki hafi komið óskir frá almenningi um að þessu verði breytt, veit jeg þó,. að margir hafa óskað þess, að tíminn yrði styttur, en þó vil jeg ekki, að eins langt. sje gengið og frv. upphaflega fór fram á.

Mjer finst, að 2. grein ætti að orðast öðruvísi. Það, sem jeg vildi breyta, er þetta, að í stað „nú hefir maður dvalið jafnlengi samfleytt í sömu sveit“ komi:. „Nú hefir maður dvalið samfleytt í sömu sveit, 5 ár eða lengur“ o. s. frv. Þetta er nauðsynlegt. Vildi jeg skjóta því til nefndarinnar, hvort ekki væri ástæða til þessarar breytingar.