26.08.1915
Efri deild: 43. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 779 í B-deild Alþingistíðinda. (897)

89. mál, kosningaréttur og kjörgengi

Framsm. (Guðm. Ólafsson):

Hv. 2. þm. G.-K. (K. D.) var að tala um það, að hjer væri hið sama og menn væru til þingsetu skyldir, en það er ekki; það er enginn til þingsetu skyldugur.

Hvað þingsetu snertir, standa konur jafnt að vígi og karlmenn. En öðru máli er að gegna um hreppsnefndir og bæjastjórnir. Þar kemur fram ójöfnuður. En þar á líka að vera jöfnuður. Það, sem losar karlmenn frá þeim störfum, á og að losa kvenmenn, en annað ekki.

Þar sem háttv. 2. þm. G.-K. (K. D.) var að tala um yfirsetukonurnar, þá er það alt annað. Yfirsetukonurnar taka þetta að sjer sem æfistarf; umdæmi þeirra eru stærri, og þær verða að fara að heiman, er þær eru sóttar, hvort heldur það er á nóttu eða degi. En hjer ræðir að eins um hreppa. Starfsviðin eru minni, ferðalögin varla teljandi, nema fyrir oddvita, og engin skylda til næturferða. Og oftast geta þær, þó að hreppsnefndaroddvitar sjeu, hagað ferðunum eftir vild sinni.

Vil jeg svo ekki þreyta háttv. deild á lengra máli, en vona að frv. verði samþ.