19.08.1915
Efri deild: 37. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 201 í B-deild Alþingistíðinda. (90)

56. mál, fjáraukalög 1914 og 1915

Framsögum. (Magnús Pjetursson) :

Það er naumast að komið hefir verið við hjartað í bændunum, þegar jeg nefndi góðærið. Ræða háttv. þm. Húnvetninga (G. Ó.) mun hafa farið fyrir ofan garð og neðan hjá flestum, enda var hún útúrsnúningur einn.

Hjer spyr mig einhver að því, hverjar sjeu þær „sjerstöku ástæður“ nefndarinnar, sem mæli með fjárveitingunni, sem talað er um í 1. lið nefndarálitsins. En þeirri spurningu vil jeg ekki svara; úr því hæstv. ráðherra er hjer viðstaddur, þá getur hann manna best skýrt þetta fyrir deildinni, ef hann álítur það rjett.

Háttv. 2. þingm. Húnvetninga (G. Ó.), var með einhverja útúrsnúninga á ræðu minni um það, að jeg hefði sagt, að þessi fjárveiting mætti ekki koma oftar fyrir. Þetta hefir hann misskilið eða misheyrt. Jeg átti hjer vitanlega að eins við stjórnina, að hún mætti ekki borga þannig lagaðar fjárveitingar út, en hitt er öllum vitanlegt, að við getum ekki bundið hendur næstu þinga, hvað sem þeim þóknast að gjöra. Annars fanst mjer svo undarlegt, sumt af því, sem háttv. 2. þm. Húnv. (G. Ó.) sagði, að jeg held hann hafi hvorki sjeð það, sem í nefndarálitinu stendur, nje heyrt það, sem jeg sagði.

Að öðru leyti finn jeg ekki ástæðu til, að fjölyrða um þetta.