14.09.1915
Efri deild: 61. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 801 í B-deild Alþingistíðinda. (930)
140. mál, heimild til dýrtíðarráðstafana
Jósef Björnsson:
Jeg þarf ekki að tala langt mál, því hv. þm. Vestm. (K. E.) hefir tekið margt af því fram, sem jeg þurfti fram að taka.
Það hefir verið sagt, að lög þessi væru óþörf, og að það væri engin dýrtíð. Jeg get skrifað undir þetta að mínu leyti, og jeg get ekki sjeð annað en að tekjur manna, bæði til lands og sjávar, sjeu með besta móti, en erfitt getur þó verið fyrir suma daglaunamenn í kaupstöðum, þó kaup þeirra hafi líka hækkað. En hv. 4. kgk. þm. (B. Þ.) sagði ekki eingöngu, að lögin væru óþörf, heldur líka að þau væru skaðleg, þau ali upp í mönnum barlómsanda. Við þetta er jeg ekki fremur hræddur en hv. þm. Vestm. (K. E.), því jeg er þess fullviss, að menn fara ekki að biðja um hjálp, fyrr en í harðbakkana slær. Og þó ekki sje dýrtíð nú, þá getur hún skollið á þá og þegar, og því verð jeg að telja rjett, að þingið afgreiði lög í þá átt, er frumvarp þetta fer fram á, því jeg tel rjett, að veita mönnum hjálp, án þess þeir missi mannrjettindi sín. En ef þeir fá hjálp eftir gildandi lögum, þá er það skoðað sem sveitarstyrkur, og jafnframt skerðing á rjettindum mannsins.
Jeg vil taka undir með þeim, er hafa sagt það vera mesta hjálp, að útvega mönnum atvinnu, en einmitt á þetta atriði leggur frv. áherslu, og það tel jeg mjög æskilegt, því sveitarstjórnir hafa gjört nóg að því, að drepa niður manndáð í mönnum með starfsemi sinni.
Jeg tel því þessa bendingu svo mikils virði, að jeg vil að frumv. nái fram að ganga (Karl Einarsson: Það er ekki bending, það er skipun). — Já, það er rjett; jeg er ekki hræddur við, að það knýi um of á dyr sveitastjórnanna.
Verði frumvarpið felt, þá tel jeg það augljósan vott þess, að allt þetta tal um dýrtíð sje að eins reykur, bóla og vindaský, og að menn vilji ekkert gjöra. Það má vera, að menn hafi allt af hugsað svo, en það er gott, að þeir sýni það með atkv. sínu.
Jeg tel að það geti komið dýrtíð, og því greiði jeg frumv. atkvæði mitt.