31.08.1915
Efri deild: 47. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 814 í B-deild Alþingistíðinda. (943)

132. mál, tollar fyrir Ísland

Jósef Björnsson :

Jeg skal reyna að þreyta ekki háttv. deild á löngu máli, en jeg get ekki stilt mig um, að fara nokkrum orðum um frv., af því, að jeg lít nokkuð öðrum augum á það en háttv., flutningsmaður (G. B.). En áður en jeg sný mjer að málefninu sjálfu, ætla jeg að víkja örlítið að einu atriði í ástæðum flutningsm. (G. B.) með frv.

Jeg kannast ekki við það sem allskostar rjett, sem háttv. flutnm. (G. B.) hefir sett í ástæður sínar fyrir frv., að dýrtíðarnefndin hafi verið öll á einu máli um, að nauðsyn bæri til, að auka tekjur landsins, með því, að leggja útflutningsgjald á matvöru, sem flutt er út úr landinu. Hitt hefði verið rjett, að segja, að bjargráðanefndin hefði öll verið sammála um, að rjett væri, að því væri hreyft í þinginu, jafnframt og íhuguð væri dýrtíðaruppbót launaðra starfsmanna landssjóðs, hvort ekki bæri nauðsyn til, að auka tekjur landssjóðs á einhvern hátt, svo að dregið yrði úr eða bygt fyrir tekjuhalla á fjárlögunum. Því einu tel jeg mig samdóma og frekar ekki, því frv. þeim, er fram eru komin um þetta efni, hefi jeg verið og er ósamþykkur eins og þau liggja fyrir, og gagn og vinsældir lögákveðinnar, almennrar útbýtingar tel jeg tvísýnt.

Það, sem jeg ætlaði sjerstaklega að minnast á með nokkrum orðum, var það, sem háttv. flutnm. þessa frv. (G. B.) sagði og lagði mesta áherslu á, að stefna okkar Íslendinga í skattamálum væri röng, og að sú stefnubreyting, sem hjer kemur sumpart fram í frv. hans, að afnema innflutningstolla og taka upp útflutningstolla í staðinn, eins og fram á er farið í frv. þeim, sem flutt hafa verið í Nd., væri rjetta leiðin. Þessa stefnu get jeg ekki aðhyllst. Í þessu efni er algjörður stefnumunur milli mín og háttv. flutningsm. (G. B.). Aðalástæðan til þess, að jeg álít hana ranga og hættulega, er sú, að jeg lít svo á, að tilfinnanlegur útflutningstollur. mundi verða hamla á framleiðslu landsmanna. Ef útflutningstollar væru svo þungir, að þeir væru veruleg byrði fyrir framleiðendur, er enginn vafi á, að tollarnir mundu draga úr áhuga þeirra, er að framleiðslu vinna, til að framleiða mikið, og jeg get ekki viðurkent, að þeir komi rjettlátlegar niður en þeir tollar, sem teknir eru af aðfluttum vörum. Háttv. flutningsm. þessa máls (G. B.) sagði, að núverandi tollar væru í raun og veru nefskattar, en að útflutningsgjald væri það síður. Jeg skal játa með honum, að allir þurfa á mat að halda, jafnt fátækir sem ríkir, og að af óumflýjanlegum lífsnauðsynjum til viðurværis, svo sem korni, sykri og jafnvel kaffi, verði menn að borga gjald, sem líkist nokkuð nefskatti. En ef maður athugar, hvernig tollarnir kæmu niður, ef þeir væru lagðir á útfluttar vörur, þá kemur það í ljós, að þeir geta hitt jafnt fátæka sem ríka, að minsta kosti stundum. Ýms framleiðslufyrirtæki eru rekin þannig, að þar sem einn hefir sitt eigið fje til starfa, verður annar að nota annara fje, af því, að hann á ekki fje sjálfur. Háttvirtur 5. konungkjörinn þingmaður (G. B.) þarf ekki að hrista höfuðið. Jeg skal skýra þetta dálítið nánar, svo að hann skilji hvað jeg fer. Jeg vil taka til dæmis tvo bændur. Annar þeirra á 100 fjár og skuldar engum neitt; hinn á líka 100 fjár, en það er alt skuldafje og leigufje; hann á ekki einn eyri sjálfur. Afurðastofn beggja bændanna er því jafn, og engu meiri líkur til, að sá ríkari selji meira frá búi sínu en hinn, sem er bláfátækur. Öllu líklegra finst mjer, að þetta yrði oft og einatt öfugt, svo að skatturinn kæmi harðar niður á þeim, er fátækari væri, og reyndist því enn ranglátari en beinn nefskattur. Jeg er sannfærður um, að háttv. 5. kgk. (G. B.) veit dæmi þess, að þetta getur átt sjer stað. Og eins og þetta getur átt sjer stað um bændur, getur það sama átt sjer stað á öðrum sviðum. Annar er ríkur, en hinn fjelaus og framleiðslan er jöfn. Í dæminu, sem jeg nefndi áðan, kæmi sennilega að jafnaði viðlíka mikið gjald á hvern bónda. En nú gæti það bætst ofan á, að einmitt sá bóndinn, sem fjelaus væri, væri barnamaður, og ætti því að framfæra fleiri menn en hinn, og sjá þá allir, að ekki er sanngjarnt, að þeir greiði jafnan skatt, þótt þeir framleiði báðir jafn mikið. Nei, jeg fyrir mitt leyti get ekki verið með að breyta til, og hverfa frá tollum á aðfluttum vörum og leggja þá í staðinn á útfluttar afurðir landsins. Sje aðflutningsgjald órjettlátt og viðsjált, þá er útflutningsgjald þó hálfu verra og viðsjálla, og ætti helst ekki að vera til. Útflutningsgjald það. sem nú er í lögum, tel jeg því neyðarúrræði, sem að eins megi við una, meðan verið er að koma í kring hentugra skattafyrirkomulagi en því, sem nú er. Af þessum sökum, og mörgum öðrum, verð jeg að taka það fram, að jeg get ekki aðhylst útflutningsgjaldsstefnuna, og ef nú á, af sjerstökum ástæðum, að taka dýrtíðarskatt af innlendum afurðum, þá lít jeg svo á, að eins og háttv. flutnm. líka er mjer sammála um, að það megi þá ekki vera annað verra en verðtollur, helst verðauka- eða gróðatollar. Enginn getur sagt um hvernig verð á afurðum landsins kann að velta frá degi til dags, og það er rjettmætt, að þegar verðið hækkar, þá sje tollurinn hærri, en að hann lækki, þegar verð vörunnar fellur. En verðtollur á útfluttum vörum verkar í gagnstæða átt við verðtoll á aðfluttum vörum. Á þetta legg jeg áherslu, og bið menn að athuga það vel, að svo hlýtur að vera, en þetta gjörir verðtoll á útfluttum og aðfluttum vörum ekki sambærilegan, og verðtollinn á aðfluttum vörum er miklu óheppilegri en á útfluttum. Neytendur aðfluttrar vöru verða að greiða í verðtoll því hærra gjald, sem varan hækkar í verði, og gjaldþol þeirra er lakara í stað þess, að þegar um verðtoll á útfluttri vöru er að ræða, þá greiða framleiðendur því hærri toll, sem þeir fá meira fyrir afurðir sínar, og því stígur og fellur gjaldið eftir því, sem gjaldþol framleiðanda eykst eða þverrar.