22.07.1915
Efri deild: 13. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 861 í B-deild Alþingistíðinda. (981)
20. mál, stjórnarskrármálið
Ráðherra:
Jeg bjóst ekki við að þurfa að taka til máls, en háttv. 2. þm. G.-K. (K. D.) gefur mjer tilefni til þess. Jeg sný mjer þá fyrst að því, sem þm. sagði síðast.
Virðist mjer skilningur hans koma fram á þá leið, eins og hann legði fram málsskjöl í málinu, Ísland gegn Danmörku, og hygg jeg hann hafi viljað það hjeti sem málsvörn fyrir Ísland, og að það ætti að skoðast svo. En ef nánar er athugað, er þm. ekki að tala máli Íslands, heldur Danmerkur, því að öll ræða hans hnígur að því, að sýna, að vjer höfum mist rjettindi vor, og rök hans öll ganga í þá átt að sanna, að svo sje. Jeg veit, að hann vill ekki, að það sje skoðað svo, en hjer er ekki hægt annað, og ef þetta helst í manna minnum, gæti jeg trúað, að þessi ræða hans og ræður skoðanabræðra hans hjer á þingi yrðu nokkuð einstæður minnisvarði yfir framkomu svo nefndra sjálfstæðismanna landsins. Mun þm. halda því fram, að dagskráin eigi að bjarga við málinu, en vart hygg jeg, að hann hafi borið mikið traust til þess, að hún næði fram að ganga. Um dagskrána má yfir höfuð segja allt hið sama, sem um till., sem molduð var í háttv. Nd. nú fyrir skemstu, og gæti jeg því í rauninni látið mjer nægja að visa í þær umr., sem þar fóru fram. Jeg hygg það nokkurn veginn almælt, að flutningsmenn og stuðningsmenn till. hafi ekki riðið feitum hesti af þeim fundi.
Mjer skildist, að háttv. 2. þm. G.-K. (K. D.) vildi halda því fram, að vegna þess óhappaverks, sem jeg á að vera valdur að, væri nú þvergirt fyrir hvert skref áleiðis í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga. Þessi ásökun á hendur mjer væri ekki góð, ef hún væri sönn, og hún er ekki heldur góð, þó að hún sje ósönn. Jeg vil nú leitast við að sanna, að hún sje ekki á rökum bygð.
Það vill verða svo oft í langvinnum málaþrætum, að menn segja ýmislegt, sem þeir gjarna vilja tala sig frá eftir á, og svo hefir farið fyrir hinum háttv. þm. Hann sagði á fundi í Hafnarfirði, að engin landsrjettindi hefðu glatast við staðfestingu stjórnarskrárinnar, þótt hann hins vegar vildi halda því fram, að fyrirvara Alþingis væri ekki fullnægt. En nú hefir hann snúið snældunni sinni, og heldur nú fram þeirri skoðun, að landsrjettindunum sje glatað, en ríkisrjettindin sjeu þó eftir heil og ósnortin. Fyrr má nú vera fleipur og lokleysa! Hvar er ríkisrjettindanna að leita, ef landsrjettindunum er kastað fyrir borð? Ef Ísland á ekki lengur nein sjerrjettindi, hvernig getur það þá átt ríkisrjettindi? Ef Alþingi hefir ekki stjórnskipulegan íslenskan rjett, til þess t. d. að skifta Gullbringu- og Kjósarsýslu í tvö sýslufjelög, hvernig getur það þá haft rjett til þess, að segja stríð á hendur eða gjöra samninga við útlend ríki, eða hafa sendiherra í útlöndum? En þetta þrent — jus belli et pacis, jus foederis et jus legationum — tilheyrir þó óneitanlega ríkisrjettindum hvers lands.
Það er annars engan veginn hinn háttv. þm. einn saman, sem hefir játað það; að landsrjettindunum væri teflt í neinn voða með staðfestingu stjórnarskrárinnar; slíkt hið sama sögðu margir pólitískir stallbræður hans í vetur, þó að þeir hins vegar ljetu svo, að fyrirvaranum væri ekki að öllu leyti fullnægt. En um það atriði má lengi þræta, því að allt er undir því komið, hvernig menn skilja fyrirvarann. Hinn háttv. 2. þm. G.-K. (K. D.) sagði raunar, að allir vissu að fyrirvaranum væri ekki fullnægt. Slíkt er full djarflega mælt. Háttv. þm. hlýtur þó að vita, að margir segja, að fyrirvaranum sje fullnægt, og felst því í orðum hans hvorki meira nje minna, en bein aðdróttun til meiri hluta þm. um, að þeir tali og greiði atkv. gegn betri vitund. Þetta er óhæfileg aðdróttun og ósamboðin forseta sameinaðs Alþingis, og býst jeg við, að hinn háttv. þm. hafi hjer í hita og vanstillingu sagt meira en hann í raun og veru meinar.
Þá sagði háttv. þm., að jeg hefði ekkert þinglegt umboð haft til þess að taka við völdum. Það er rjett, að frá hendi Alþingis lá ekki fyrir nein formleg samþykt um það, að jeg skyldi taka við völdum, en kom nokkur slík formleg samþykt fram þegar ráðherraskiftin urðu á Alþingi 1914? Munurinn á ráðherraútnefningunni þá og nú er sá einn, að þá voru þingbekkirnir skipaðir og gafst því þm. tækifæri til þess, að makka saman um það, hver hnossið ætti að hreppa. Og er satt best að segja, að 1914 fjekk ekkert ráðherræfni eindreginn meiri hluta Alþingis, því að sjálfur meiri hlutinn, „Sjálfstæðisflokkurinn, var ekki sjálfum sjer samþykkur um það efni. 10–12 atkv. flokksins fjellu Páli í skaut, hinir aðhyltust Pjetur, og svo fór að lokum, að minni hluti flokksins beygði sig fyrir meiri hlutanum. Þannig fæddist ráðherrann 1914. Og nú er mjer spurnin, hvort þetta sje heilbrigðari aðferð, heldur en að fá frjálst atkv. þm., þar sem þeir sitja að búum úti um sveitir landsins, ótruflaðir af öllum flokksæsingum?
Ef það væri siður, að sameinað Alþingi samþykti yfirlýsing um, hver taka skyldi við völdum, þá væri jeg vítaverður fyrir að hafa tekið á móti útnefningu konungs, án þess að slík yfirlýsing hefði komið fram. En nú er þetta ekki siður, og hygg jeg að allur landslýður muni álíta útnefning mína eins góða og gilda fyrir það, þótt ekkert baktjaldamakk hafi farið fram hjer á Alþingi áður en jeg tók við völdum. (Kristinn Daníelsson: Minni hlutinn á engu að ráða um ráðherraútnefningu). Sá minni hluti, sem hv. þm. er í, átti engu að ráða. — Það er alveg satt! því að hans flokkur eða flokksbrot er ótvírætt og efunarlaust í minni hluta hjer á Alþingi. En ef til vill meinar hv, þm. . að Heimastjórnarmenn megi ekki hafa hönd í bagga um slíkt. En um það get jeg ekki heldur verið honum samdóma, því að jeg get ekki betur sjeð en atkvæði Heimastjórnarmanna sjeu jafn góð og gild sem annara þingmanna. Yfir höfuð hygg jeg, að sú skoðun muni verða ofan á meðal þjóðarinnar, að það hafi verið vel farið, að hv. þm. og pólitískir vinir hans báru ekki sigur úr býtum í vetur. Það hefði verið illa farið, ef jeg hefði beygt mig fyrir öllum þeim öfgum og ofstæki, sem þeir höfðu í frammi þá ekki síður en nú.
Mjer heyrðist hinn hv. þm. segja, að jeg hefði unnið hermdarverk á þingræðinu með framkomu minni. Jeg mundi ekkert fást um, þó að jeg heyrði slík orð af vörum óvaldra blaðamanna, en það er furðulegt að heyra forseta sameinaðs þings kasta fram svo illkynjaðri og órökstuddri aðdróttun. — —
Hinn háttv. þm. fór nokkuð út í málið sjálft og rakti með fáum orðum sögu ríkisráðsdeilunnar. Það er satt, að á meðan á gömlu endurskoðunarbaráttunni stóð, þótti mönnum mjög miklu skifta, hvar sjermálin væru borin upp fyrir konung, en svo hófst Valtýskan, og þá vildu þeir, sem henni fylgdu, að þetta atriði væri látið liggja milli hluta. 1902–1903 var svo ný stefna tekin, að beint skyldi ákveðið í stjórnarskránni, að sjermálin skyldu borin upp fyrir konung í ríkisráði, og þóttust menn með þessu geta helgað sjer rjett til þess, að nema ríkisráðsákvæðið aftur burtu úr stjórnarskránni. 1911 er ákvæðið að vísu felt niður, en þó alls ekki ákveðið, hvar bera skuli málin upp nje bann lagt við, að uppburðurinn fari fram í ríkisráði. Það virðist óhugsanlegt, að þinginu 1911 hafi komið annað til hugar en að málin yrðu eftir sem áður borin upp í ríkisráði, og frá þingsins hlið var því burtfelling ríkisráðsákvæðisins ekki annað en formsatriði. Þá kemur síðasti þátturinn, fyrirvaradeilan, og er það fljótsagt, hvað meint var með fyrirvaranum. Hann átti að afstýra því, að rjettindi landsins rýrðust í nokkurri grein, en um leið átti hann að vera svo úr garði gjörður, að hann yrði ekki stjórnarskránni að falli. Hitt kom engum til hugar, að hægt væri á þann hátt að nauðga Dönum til frekari viðurkenningar á rjetti vorum en áður hafði af þeim fengist. Frá hálfu skoðanabræðra háttv. 2. þm. G.-K. (K. D.) er það margviðurkend skýring á fyrirvara þingsins 1914,
að eigi væri þar krafist viðurkenningar Dana á því, að uppburður mála vorra fyrir konungi sje sjermál. vort, er vjer getum einir ráðið með konungi vorum án allrar íhlutunar dansks löggjafarvalds eða danskra stjórnarvalda. Jeg vil halda mjer við þessa viðurkendu skýringu á fyrirvaranum, enda liggur það í augum uppi, að það hefði verið óðs manns æði að búast við staðfestingu stjórnarskrárinnar, ef í fyrirvaranum hefði verið fólgin skýlaus krafa um ótvíræða viðurkenningu Dana á landsrjettindum vorum.
Nú er eftir að athuga, hvort nokkur þau skilyrði hafi verið sett fyrir staðfestingu stjórnarskrárinnar, sem ekki sjeu samrímanleg fyrirvaranum og vilja Alþingis 1914. Jeg vil nú fara nokkrum orðum um þetta, og mun jeg taka atriði málsins í nokkuð annari röð, en hinn háttv. 2. þm. G:-K. (K. D.). Fyrst er þá að líta á till. mína um staðfestingu stjórnarskrárinnar, er jeg lagði hana fyrir konung í ríkisráði. Þar segir fyrst, að stjórnarskráin hafi verið löglega samþykt á þingunum 1913 og 1914, og að nýjar almennar kosningar hafi farið fram milli þing- manna. Þetta er væntanlega engin synd. Þá er fyrirvarinn tekinn orðrjettur upp í danskri þýðingu í till., og er það vonandi líka vítalaust. Læt jeg þess því næst getið, að á Alþingi hafi ekki verið vakinn neinn andblástur gegn því, að málin yrðu framvegis borin upp í ríkisráði. Þetta er fyrsta stórsyndin, sem jeg á að hafa drýgt á ríkisráðsfundinum 19. júní. Á Hafnarfjarðarfundinum var það sagt, að þetta væri röng skýrsla; jeg man ekki hvort það var háttv. 1. þm. eða háttv. 2. þm. G:-K., sem sagði það. En þetta er þó svo satt, sem satt má vera, því að fyrirvarinn sjálfur gjörir ráð fyrir, að málin verði borin upp í ríkisráði. Geta allir sjeð þetta, sem lesa fyrirvarann til enda. Á þinginu 1914 heyrðist jafn vel ekki ein einasta rödd móti því, að uppburðurinn færi fram í ríkisráði. Sama er að segja um þingið 1913, að því undanskildu, að háttv. 2. þm. G.-K. (K. D.) talaði þá um, að ákvæðið um að konungur skyldi ákveða, hvar málin skyldu borin upp, væri ekki annað en grímuklætt ríkisráðsákvæði, og mundi honum eigi hafa farist svo orð, ef hann hefði eigi vitað, að það var ekki tilgangur Alþingis, að taka sjermálin út úr ríkisráði. Þessu næst er því lýst í till., hvernig á því hafi staðið, að fyrirvarinn kom fram, og veit jeg ekki til, að menn hafi haft neitt verulegt við það að athuga. Í niðurlagi till. er svo lagt til, með skírskotun til fyrirvarans, að stjórnarskráin verði staðfest og gefinn út konungsúrskurður um uppburð sjermálanna í ríkisráði, á byrgð Íslands ráðherra eins, svo sem fyrirvarinn heimtar.
Þá kemur forsætisráðherrann til sögunnar. Hinn háttv. þm. sagði, að jeg hefði átt að fyrirbjóða honum að taka til máls um þetta efni. Háttv. þm. hlýtur þó að vita, að það stóð ekki í mínu valdi. Hitt var skylda mín, að mótmæla honum, ef hann hjeldi fram annari skoðun en jeg. Og það gjörði jeg.
Það er rangt hjá háttv. þm., að þm. V.-Skaft. (S. E.) hafi mótmælt því, að forsætisráðherrann tæki til máls. Ef háttv. þm. V.-Skaft. (S. E.) hefði komið fram með slík mótmæli, þá hefðu þeir einungis lent í pexi, sem hefði verið algjörlega þýðingarlaust. Úr því þó að heiðraðir andstæðingar mínir hallmæla ekki formanni mínum í ráðherrasessi fyrir það, að hann ljet það við gangast, að forsætisráðherrann tæki til máls, hvers vegna vita þeir mig þá fyrir hið sama. Háttv. þm. V.-Skaft. (S. E.) mótmælti því, að forsætisráðherra Dana bæri ábyrgð á íslenskum málum. En þau mótmæli virðast vera sprottin af misskilningi, því að forsætisráðherranum kom slíkt ekki til hugar. Við skulum hugsa okkur hvernig farið hefði, ef Íslands ráðherra hefði sagt á þessa leið: „Þú mátt ekkert segja hjer. Eftir að jeg hefi lýst skoðun Íslendinga, mátt þú ekki lýsa skoðun Dana á málinu“. Til hvers hefði það leitt? Það gat einungis leitt til þess, að stjórnarskráin fengist ekki staðfest. Eigum við að láta það bitna á okkur, þó forsætisráðherra Dana taki til máls, á þann hátt, að vjer fáum ekki málum okkar framgengt. Það var engin rjettarskerðing fyrir Íslendinga, þó forsætisráðherrann tæki til máls og lýsti skoðun Dana á málinu.
Þá fann háttv. 2. þm. G:-K. (K. D.) að því, að Íslands ráðherra leyfði að birt yrði. skýrsla um fundinn í Danmörku. En slík birting hefir enga ríkisrjettarlega þýðingu Annars er það undarlegt, að andstæðingar mínir hjer í þinginu halda því fram, að þessi birting hafi þýðingu, en helsti málsvari þeirra utan þings heldur því fram,. að hún sje þýðingarlaus. Enda er það rjett. Fólk fær einungis að vita hvað gjörst hefir. Jeg hefi talað um þessa birtingu og sýnt, að hún skiftir engu máli, og á sama hátt og birtingin í Lögbirtingablaðinu skiftir engu máli. Og ekki eru heldur sjálf ummæli forsætisráðherrans saknæm frelsi landsins. Hann segir einungis, að enginn ágreiningur sje um það, að íslensk lög og mikilvægar stjórnarráðstafanir verði; áfram borin upp í ríkisráði. Hann segir enn fremur, að skoðun Dana á þessu sje sú, að eigi beri að breyta þessu, nema ný skipun verði á gjörð, er feli í sjer líka tryggingu sem þá, er nú sje. Enn fremur er það hans skoðun, að eftir þeirri skipun, sem nú er á rjettarsambandinu milli Íslands og Danmerkur, verði að vera ákveðinn einhver staður, þar sem bera megi upp vafaatriði um takmörk hinna sameiginlegu og sjerlegu mála. Þetta er skoðun Dana á málinu. Og er það harla undarlegt, að neita að taka við staðfestingu stjórnarskrárinnar þótt, Danir hafi einhverja skoðun á málinu og láti hana í ljós á óbrotinn og stjórnskipulega rjettan hátt. Það liggur ekki annað í orðum forsætisráðherrans en það, að Danir telji sig hafa sams konar rjett gagnvart okkur, sem við teljumst hafa gegnvart þeim. Gangi annar málsaðilinn á rjett hins, þá hafa báðir jafnan rjett á að mótmæla. Hefði forsætisráðherrann sagt, að þetta fyrirkomulag væri nauðsynlegt til þess, að Danir einir gætu athugað okkur, væri það hálfu verra, og er háttv. þm. sjálfsagt samþykkur mjer í því. En í orðum forsætisráðherrans felst jafnframt viðurkenning á því, að okkur sje heimilt að gjöra okkar athugas., ef Danir gangi á okkar rjett. Og þessi rjettur hefir einmitt nokkrum sinnum verið notaður af okkar hálfu. Þó má eigi svo skilja orð mín, að þessi eftirlitsrjettur af Dana hálfu eigi að eiga sjer stað. Forsætisráðherrann bað enn fremur um að mega birta skýrslu um, hvað gjörst hafði í þessu máli, og hefi jeg þegar talað um það.
Nú kem jeg loks að því, sem Hans hátign konungurinn hefir sagt. En fyrst vil jeg víkja orðum mínum að ummælum háttv.2. þm. G:-K. (K. D.) um ábyrgð mína á orðum konugs. Það er ekki svo að skilja, að rjett sje, sem háttv. þm. hjelt fram, að sjálfsagt sje að ráðherrar hljóti að bera ábyrgð á öllu því, er konungur kann að segja í ríkisráði. Við getum óhugsað okkur þann möguleika, að konungar leggi á móti öllu ráðuneytinu. Þá getur vitanlega enginn ráðherranna borið ábyrgð á orðum hans, úr því að þeir eru honum ósamþykkir. Háttv. þm. svarar þá ef til vill því, að eftirmenn þeirra beri þá ábyrgð á orðum hans. En við getum þá hugsað oss þann möguleika, að vilji konungsins kæmist aldrei í framkvæmd, og getur þá enginn borið ábyrgð á orðum hans. Engin má skilja orð mín svo, sem jeg sje ekki fús til að bera ábyrgð á orðum konungs í ríkisráðinu 19. f. m. Jeg tek á mig ábyrgðina á þeim öllum með glöðu geði, því að jeg er þess fullviss, að jeg get bæði sem maður og góður Íslendingur borið ábyrgð á öllum orðum hans; að öðrum kosti hefði jeg gjört athugasemdir við það til frekari fullvissu. Konungurinn segir, að það sje vilji sinn, að íslensk mál verði framvegis sem hingað til borin upp fyrir honum í ríkisráðinu, og þar eru allir sammála, Alþingi Íslands ráðherra og konungur. Og forsætisráðherrann danski hefir ekki heldur á móti því. Og samþykki hans verður líka að koma til greina. Jeg býst við, að háttv. 2. þm. G: K. (K. D.) sje mjer sammála um það, að forsætisráðherrann gæti haft á móti uppburði íslenskra mála í ríkisráði. Ríkisráðið er dönsk stofnun, og þar sem grundvallarlög Dana gilda ekki hjer á landi, verðum vjer vitanlega að fá samþykki Dana fyrir munn forsætisráðherrans, til þess að geta borið mál vor upp í ríkisráðinu. Jeg þekki að vísu þá kenningu, að 1913 hafi verið myndað sameiginlegt ríkisráð, sem sje orðið fast í praksis. En sú kenning skiftir engu máli hjer, og Danir hafa aldrei fallist á hana.
Næsta saknæma setningin í ræðu konungs á að vera þessi: „Eins og jeg hefi áður sagt, er það konunglegur vilji minn, að íslensk mál skuli áfram vera borin upp fyrir mjer í ríkisráði mínu“. Hjer skilja andstæðingar mínir eða þykjast skilja svo, sem þetta sje tilvitnun í allt, sem konungur hefir áður sagt í ríkisráði. Þeir hafa skilið það svo, sem tekið væri upp bæði opna brjefið 22. okt. 1913 og allt, sem konungur sagði í ríkisráðinu 30. nóv. 1914. Ef menn skilja þetta svo; þá er það algjörlega rangt, því sá skilningur á sjer enga stoð í orðum konungs. Tilvitnunin takmarkast af því, sem seinna kemur. Og konungur minnist ekkert á samþykt Alþingis og Ríkisþings á nýjum sambandslögum, eins og hann hafði gjört í auglýsingunni 20. okt. 1913, nje heldur dönsku auglýsinguna. Hann segir það eitt, að það sje vilji sinn, að málin sjeu borin upp í ríkisráðinu. Hið næsta varhugaverða, sem háttv. þm. fann í orðum konungs, og að hans áliti sviftir okkur þeim litla rjetti, sem við hingað til höfum haft, er það, að konungur sagði, að Alþingi mætti ekki vænta þess, að hann gjörði neina breytingu á þessu í sinni stjórnartíð. Háttv. þm. tók í lok ræðu sinnar munninn svo fullan, að hann sagði, að konungur fortaki fyrir allar breytingar. Þetta er ekki rjett. Konungur sagði að eins, að Alþingi mætti ekki vænta þess, að hann gjörði neina breytingu á þessu í sinni stjórnartíð. Jeg leyfi mjer að benda háttv. þm. á það, að konungur hefði getað neitað því algjörlega fyrirfram, að málin yrðu nokkurn tíma borin upp annars staðar en í ríkisráðinu, því að enda þótt konungur sje constitutionel, hefir hann þó algjört synjunarvald. Konungur hefir vald til að lýsa því yfir, að hann gangi aldrei inn á einhverja breytingu á lögum vorum. Konungur segir nú alls ekki, að atbeina danskra stjórnarvalda þurfi til, að breyting geti á orðið. Hann segir einungis „í minni stjórnartíð“. Þetta band fellur vitanlega burtu, þegar hans stjórnartíð er á enda. Yfir þessu þarf enginn að hrista höfuðið. Þetta er alveg rjett hugsun. Ef eitthvert skilyrði er bundið við mína lífdaga, þá fellur það vitanlega í burtu, þegar þeim er lokið. Ef háttv. 2. þm. G:-K. (K. D.) hefir einhvern rjett, sem er persónulegur, þá gengur hann vitanlega úr gildi jafnskjótt og háttv. þm. deyr. Öryggisleysið, sem háttv. þm. talar svo mikið um, getur ekki komið til greina. Konungur talar einungis um, að ekki verði gjörð breyting á þessu atriði, nema ný skipun verði á gjörð, sem sje jafntrygg og sú, er nú er. Sú skipun, sem nú gildir, er frá 3. okt. 1913, og hún gildir að minsta kosti fram á haustið. Krafa konungs er einungis sú, að ný skipun, sem á þessu yrði gjörð, verði ekki ótryggari, og við getum tekið ákvæði um það upp í stjórnarskrána, ef okkur þóknast. Hver gjörir þessa nýju skipun? spyr háttv. þm.ef til vill. Það gjörir vitanlega konungur, og Íslands ráðherra skrifar á hornið, eins og vant er. Annars væri hún ólög. Hvar segir konungur, að fleiri þurfi en Íslandsráðherra og konung, til þess að breyta þessum úrskurði? Þar sem konungur talar um að fyrirkomulagið verði að vera „jafntrygt“, þá felst einungis í því mótvægi gegn því, að hringlað verði með málin fram og aftur. Það er kunnugt, að sú hugmynd hefir komið fram á þinginu, að málin verði í dag borin upp í ríkisráði, en á morgun einhvers staðar annarsstaðar. Slíkt er ótrygt fyrirkomulag, sem Hans hátign getur ekki felt sig við.
Ekki veit jeg hvort dönsku blöðin hælast um og lýsi úrslitunum á þá leið, að allt sje óbreytt og — sje status quo. En. jeg hefði getað hugsað mjer Dani álíka prokuratora eins og háttv. 2. þm. G:-K. (K. D.) og þá, sem honum fylgja hjer í þinginu. Og ekki er nema eðlilegt, að þeir hafi eins mikla löngun til að prokurera fyrir sjálfa sig, eins og (háttv. þm. virðast hafa til að prokurera fyrir Dani. Og þó norsk blöð tali um, að jeg hafi komið liðleskjulega fram í ríkisráðinu 19. júní, þá legg jeg ekki mikið upp úr því. Norsk blöð geta ekki hafa vitað neitt um skilmálana, nema ef vera skyldi af hinni óheimilu birtingu leyniskjalanna og Ingólfur þá verið kominn til Noregs. En auk þess voru staðfestingarskilmálarnir aðrir en látið var uppi í óheimilu birtingunni. En annars ætla jeg ekki að tala um þá birtingu hjer.
Það getur vel verið, að hv. 2. þm. G:-K. sje alsaklaus af því verki. Jeg veit ekki. hvernig hann lítur á það mál, og stendur alveg á sama, hvort hann lofar það verk. eða lastar.
Mig furðaði mikillega á því, er háttv. þingmaðurinn sagði, að þar sem jeg hefði komið fram sem föðurlandssvikari, ætti hver þingmaður að hafa liberum veto gegn því, er jeg hefði gjört. Með öðrum orðum hver einstakur þingmaður, þar á meðal háttv. þm. G.-K. (K. D.), ætti með atkvæði sínu að geta ónýtt alt, sem jeg hefi gjört. Jeg veit ekki til, að þetta liberum veto hafi tíðkast nema í einu landi, Póllandi, á 17. og 18. öld. Var það á þá leið, að hver aðalsmaður gat með atkvæði sínu ónýtt það lagafrumvarp, er fram átti að ganga. Þetta vill háttv. 2. þingm. Gullbr.- og Kjósarsýslu innleiða hjer. Hann vill hafa rjett til að standa upp á þinginu og mótmæla gjörðum Íslands ráðherra í máli þessu. Alt, sem jeg hefi gjört í máli þessu, vill hann með því ónýta og að engu hafa. Annars veit jeg ekki, hvað er ósamrýmanlegra þingræðinu en þetta. Og ef það er rangt að taka við stjórn í trássi við meiri hluta á þingi, þá hygg jeg þó að liberum veto sje ekki samrýmanlegra þingræðinu. Víst er um það, að liberum veto olli því, að svo fór um Pólland, sem reyndin varð á. Jeg óska Íslandi einskis frekar en þess, að gæfan forði því frá, að einum þingmanni verði nokkurntíma gefið slíkt vald.