13.01.1917
Sameinað þing: 6. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 75 í B-deild Alþingistíðinda. (1004)

Þinglausnir

Forseti:

Áður en fundi er slitið, vil jeg leyfa mjer að skýra hinu háa Alþingi frá því, hver störf hafa nú verið leyst af hendi.

Fyrir þingið voru lögð alls 6 stjórnarfrumvörp, og hafa 5 af þeim verið samþykt sem lög frá Alþingi, en eitt þeirra var felt.

Þingmenn báru alls fram 22 frumvörp. Af þeim hafa 8 verið samþ. sem lög frá Alþingi, 5 verið feld og 9 voru ekki útrædd.

Alls hafa því verið samþykt 13 lög á þinginu.

Þingsályktunartillögur hafa alls verið bornar fram 20. Af þeim hafa 10 verið afgreiddar til landsstjórnarinnar, 1 feld, 3 teknar aftur, 4 ekki útræddar og 2 voru um skipun nefnda.

Þannig er þá lokið störfum þessa Alþingis, og þegar litið er yfir í heild, hverju hefir verið afkastað, þá er þar skemst af að segja, að ein aðalhugsun og viðleitni hefir verið ráðandi í gjörðum þess, sú, að ráða nokkra bót á því tjóni, sem hin trylta heimsstyrjöld hefir bakað landi voru, og reisa sem unt er skorður við þeim erfiðleikum og þunga vanda, sem vænta má, að hún enn muni valda oss, og því meira, sem hún stendur lengur.

Meiri hlutinn af þeim lagafrumvörpum og þingsályktunartillögum, sem fram hafa verið bornar, hafa haft þetta fyrir augum eða staðið meira og minna, beint eða óbeint í sambandi við dýrtíðina og aðrar afleiðingar styrjaldarinnar.

Mest kveður að viðleitni þessa þings til að ráða bætur á samgöngum og tryggja aðflutning á nauðsynjum landsmanna. og hygg jeg, að ráðstafanir þingsins í því efni, um skipakaup og fleira, beri órækt vitni um, að það hefir ekki viljað láta neitt sitt eflir liggja í þeim efnum.

Í annan stað hafa og vakað fyrir því ráðstafanir til að tryggja það, sem á hina hliðina er jafn þýðingarmikið, að afurðir landsins komi þjóðinni að sem fylstum notum, tryggja þeim sem unt er markað og sæmilegt verð, þó að eðlilega hljóti árangur af þeim ráðstöfunum að vera meira óvís.

Og enn mun í röð þinganna þetta þing verða minnisstætt fyrir þá breytingu, sem á því hefir verið gjörð á æðstu umboðsstjórn landsins með fjölgun ráðherranna. — Um þá breytingu má einnig segja, að þótt hún hafi verið undirbúin að nokkru af fyrri þingum og í huga þjóðarinnar, þá mundi hún varla hafa komið í framkvæmd á þessu þingi, ef ekki hefði nú með henni verið höfð fyrir augum þessi sama aðalhugsun þingsins, að ráða fram úr örðugleikum yfirstandandi tíma, sameina að því starfi kraftana og hugina, og styrkja um leið stjórnina, jafnframt og bundist hefir verið því heiti, að vera meira en áður samtaka í þeim efnum, sem með sjálfum oss hafa mestum greinum valdið, um fullveldismál þjóðarinnar.

Að öðru leyti áskil jeg mjer ekki rjett til að kveða upp í nafni yðar, háttv. þingbræður, neinn sameiginlegan dóm yðar allra um, hversu störf vor hafi tekist.

En jeg hefi rjett til — um leið og jeg nú að skilnaði árna yður öllum góðrar og gleðilegrar heimkomu — að bera fram þá sameiginlega ósk vor allra, að störfin megi bera nokkurn ávöxt til heilla fyrir þjóð vora, til að draga úr erfiðleikum, sem fram undan sýnast liggja.

Eg hefi rjett til að láta síðustu orðin, sem hjer eru töluð, vera þá sameiginlegu bæn vor allra, að drottinn varðveiti og blessi fósturjörð vora, land og lýð.