28.12.1916
Neðri deild: 7. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 70 í B-deild Alþingistíðinda. (108)
19. mál, æðsta umboðsstjórn landsins
Jón Jónsson:
Það er ekki rjett hjá háttv. þm. Dal. (B. J.), að hinn nýstofnaði flokkur hafi barist fyrir fjölgun ráðherra. Frumkvæðið að því er komið frá stjórninni. Um sambandið milli flokkanna veit jeg ekki til hlítar, en mjer er kunnugt um það, að sjálfstæðisflokkurinn sótti eftir því um tíma, að fá nýja flokkinn til sambands við sig um það, að skipa stjórn í landinu. En sannleikurinn er sá, að samkomulag hefir ekki náðst milli þingflokkanna um nægilegt fylgi handa eins manns stjórn, og þess vegna hefir orðið samkomulag um þrjá ráðherra, og er hinn nýstofnaði flokkur fylgjandi þeirri úrlausn málsins.