28.12.1916
Neðri deild: 8. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 71 í B-deild Alþingistíðinda. (112)
19. mál, æðsta umboðsstjórn landsins
Magnús Pjetursson:
Eins og getið var um við 1. umr. frv. hefi jeg ásamt hv. 1. þm. Skagf. (M. G.) leyft mjer að flytja brtt. við frv., og eru þær á þgskj. 28. Mjer fanst ekki eiga við að gjöra grein fyrir þeim við 1. umr. En ýmsir háttv. þm. hafa minst brtt. og tekið fram ástæðurnar, sem fyrir þeim eru, að sumu leyti; get jeg því sparað mjer langa greinagjörð fyrir þeim, en vil að eins drepa á það helsta, sem fyrir okkur flutningsmönnunum vakti.
Þegar þetta þing var kvatt saman, skildist mönnum, sem það væri sjerstaklega gjört vegna ófriðarins, og til þess að gjöra þær ráðstafanir einar, sem bráðnauðsynlegar þættu af þeim ástæðum. Þegar því farið var að tala um, að setja 3 ráðherra, í stað eins, þá skildi jeg þær tillögur einnig beint sprottnar af og miðaðar við ófriðarástandið, það er að segja til bráðabirgða, og fanst mjer það eðlilegt, því að það er öllum vitanlegt, að störf ráðherrans hafa aukist geysilega vegna stríðsins, eins og líka hæstv. ráðherra (E. A.) tók fram áðan. En hinu hafði jeg ekki búist við, að þetta vandræðaástand yrði notað til þess að slá því föstu fyrir fult og alt, að ráðherrar skyldu ætíð vera þrír.
Það má vel vera, að sú skoðun, sem flestir háttv. þm. virðast fylgja, sje rjett, sem sje, að nauðsynlegt sje að fjölga ráðherrum til frambúðar, en það hefir einnig sýnt sig, að ekki eru allir á því máli. Hitt er víst, að allir eru ásáttir um það, að eins og nú stendur á, sje nauðsynlegt að fjölga ráðherrum. Það er því bersýnilegt, að ef brtt. okkar verða samþyktar, þá mun frv. fá óskift atkvæði alls þingheims. Og getur það verið nokkrum til meins, þó frv. sje nú að eins látið gilda til ákveðins tíma? Mjer getur ekki skilist það. Þeir sem trúa ágæti þessa fyrirkomulags í framtíðinni, geta ekkert haft á móti því, þó þinginu 1919 sje fyrirskipað að taka málið til meðferðar. Til þess tíma ætti að koma nokkur reynsla á þetta fyrirkomulag, og þeir sem sannfærðir eru um að fyrirkomulagið sje til bóta, hljóta einnig að vera sannfærðir um að sú reynslan verði þeim í vil.
Því hefir verið haldið fram, að ekki þurfi að óttast þjóðarviljann; menn hafa sagt, að hann hallaðist á sveif með meiri hlutanum í þessu máli hjer á þingi. Þetta tel jeg öldungis ósannað. Jeg tel það hafa sárlitið sönnunargildi, þótt fjölga ætti ráðherrum samkvæmt stjskr.frv. 1911. Þetta þing er alt öðru vísi samsett, enda eru nú sumir þeirra þingmanna, sem þá voru fjölguninni hlyntir, horfnir frá þeirri skoðun. Þetta bendir því einmitt til þess, að ráðherrafjölgunin hafi fremur tapað fylgi, ásamt því, að þessu var síðar slept úr frv. Vjer getum að minsta kosti ekkert fullyrt um það, hversu mikið fylgi þessi stefna hafi.
En fylgismönnum þessarar stefnu, ráðherrafjölgunarinnar, ætti að skiljast það, að brtt. okkar fela einmitt í sjer stórgróða þeim til handa. Þeir geta notað tímann til 1919 til þess að færa sönnur á það, að meiri hluti þjóðarinnar sje þessari stefnu hlyntur og, að hún sje nauðsynleg, og einmitt þetta getur aflað stefnunni vinsælda, ef hún er rjett, það að hún fái að reyna sig í framkvæmdinni. Ef einhver skyldi vilja hraða málinu fyrir þá sök, að hann óttast mótspyrnu hjá þjóðinni, þá er það víst, að mótspyrnan mundi espast við það, að hrapað væri að því að samþ. þetta fyrir fult og alt, en hitt mundi gjöra mótspyrnuna vægari og gætnari, ef fyrirkomulagið væri beint lagt undir umræður og ályktanir þings og þjóðar í náinni framtíð. Á því sæist að þingið hefði ekki viljað hrapa að neinu að ástæðulausu.
Jeg ætla alls ekki nú að blanda mjer inn í að rökræða um, hversu heppilegir 3 ráðherrar muni verða á venjulegum tímum. Það má gjöra síðar. Hitt kemur oss öllum saman um, að eins og ástandið er nú, þá eigi ráðherrar að vera þrír, og þess vegna á það að sjást í frv., og þess vegna á að samþykkja brtt. okkar í e. hlj.