28.12.1916
Neðri deild: 8. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 80 í B-deild Alþingistíðinda. (118)
19. mál, æðsta umboðsstjórn landsins
Ráðherra (Einar Arnórsson):
Það er aðallega ræða hv. samþingism. míns (S. S.), sem kemur mjer til að standa upp og segja fáein orð.
Jeg efast ekki um að það er satt, sem hann segir, að hann hafi verið á móti fjölgun ráðherra á þinginu 1911, en hitt þykir mjer vænt um, að hann staðfestir það, sem jeg sagði, að hann hefði greitt stjórnarskrárfrv. óbreyttu atkv. á því þingi. Hitt skil jeg ekki hvernig hann fer að rjettlæta það, að hann greiði atkvæði með máli, sem hann er í hjarta sínu á móti. Hann segist hafa gjört það til þess, að kjósendur fengju tækifæri til að segja álit sitt um málið. Mjer finst háttv. þm. vera þar á villigötum. Jeg held, að rjettara hefði verið fyrir hann, að greiða atkv. samkvæmt sannfæringu sinni, en ekki til þess eins, að þóknast kjósendum.
Það er ekki rjett hjá hv. þm. (S. S.), að jeg leggi hann í einelti, eða vilji elta ólar við hann. En hann var sá eini í dag, sem andmælt hefir þessu frv., og því hafði jeg ekki annan til að elta ólar við.
Um brtt. á þgskj. 28 skal jeg segja það eitt, að jeg skil ekki hvers vegna á að vera að fresta að taka fullnaðarákvörðun um þetta mál, fyrst allir eru sammála um, að stjórnarstörfin verði betur af hendi leyst, ef ráðherrarnir verða þrír, en ef þeir verða færri.
Annars skal jeg geta þess, að ef brtt. á þgskj. 28 verður samþykt, og ef menn hugsa sjer ekki að lögin verði endurnýjuð 1919, þá þarf þó að minsta kosti ný lög, ef ekki stjórnarskrárbreyting, til að stofnsetja landritaraembættið á ný.