28.12.1916
Neðri deild: 8. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 86 í B-deild Alþingistíðinda. (123)
19. mál, æðsta umboðsstjórn landsins
Gísli Sveinsson:
Jeg vil leyfa mjer að gjöra örlitla athugasemd við orð hæstv. ráðh. (E. A.). Jeg þóttist hafa fært rök fyrir því, að ef ekki þyrfti landritara við með þremur ráðherrum, þá ekki heldur með einum; hver raunin verður, mun tíminn leiða í ljós.
Um formið á því, hverju þurfi að breyta, talaði eg ekki. Tel þó að alls ekki þyrfti stjórnarskrárbreytingu, þótt landritaraembættið yrði stofnað aftur, ef það þá ekki kæmi upp aftur sjálfkrafa, er lögin fjellu úr gildi, eins og brtt. gerir ráð fyrir. Eins og sjest á frv. er heldur ekki farið fram á neina stjórnarskrárbreytingu, til þess að leggja það niður, enda er það heimilað í stjórnarskránni.
Annars hygg jeg, ef slíkur milliliður í stjórninni er nauðsynlegur, þá megi hugsa sjer aðra menn en landritara, eða mann með öðru nafni.