28.12.1916
Neðri deild: 9. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 89 í B-deild Alþingistíðinda. (127)

19. mál, æðsta umboðsstjórn landsins

Flutnm. (Matthías Ólafsson):

Jeg þarf ekki að eyða mörgum orðum að tillögu þessari. Satt að segja bjóst jeg ekki við, að þurfa að standa upp nú við þessa umr. Mjer hefði ekki komið á óvart, þótt þessi brtt. hefði komið fyr frá þessum háttv. þm. (S. S.). Hann er svo mikill sparnaðarmaður. (H. Sv.: Hann ætlaði að drepa frv.). Ekki vil jeg segja það. En jeg held, að sparnaðartilhneigingin fari með hann í gönur. Vjer verðum að leggja nokkuð upp úr því, að þessir menn, sem eru ráðherrar, hafi laun, er samsvari því, er slíkir menn hafa í öðrum löndum. Þótt risnan hvíli á forsætisráðherranum, kemur mjer ekki annað til hugar en staða hinna ráðherranna baki þeim meiri útgjöld en öðrum embættismönnum. Jeg vænti þess, að deildin líti svo á, að laun þessi sje ekki of há, og sje þau öllu lægri, sje oss það vansæmd. Háttv. 1. þm. Árn. (S. S.) talar um barlóm launamanna. Eftir hans skoðun má þjóðin berja sjer, en ekki einstakir menn. En lítum nú á hitt, hvort þjóðin getur með rjettu barið sjer. Ef athugað eru innlög í banka og sparisjóði síðastliðin ár, dylst oss eigi, að slíkur barlómur fyrir þjóðarinnar hönd er með öllu órjettmætur. Þjóðin er einmitt efnuð, og það sem betra er, efnunum er jafnt skift. Get jeg því með engu móti fallist á röksemdir hins háttv. flutnm. brtt. (S. S.), að launin sje of há.

Jeg orðlengi svo ekki frekar um brtt., þótt háttv. flutnm. hennar tali aftur, mun jeg ekki svara honum. Jeg hefi sagt mitt síðasta orð í þessu máli.