04.01.1917
Neðri deild: 14. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 114 í B-deild Alþingistíðinda. (185)
21. mál, ráðstafanir út af Norðurálfuófriðnum
Pjetur Ottesen:
Jeg ætla að eins að segja fáein orð í máli þessu, sökum þess, að jeg var annar flutnm. þingsályktunartillögu á þgskj. 19.
Þar sem jeg þykist þess fullviss, að ráðstafanir hafa þegar verið gjörðar til þess, af landstjórninni að birgja landið upp að korni og öðrum nauðsynjavörum, og útlát á þeim vörum sje fyrirhuguð, eins og farið var fram á í tillögunni, þá álít jeg að tilganginum með tillögu okkar sje náð.