10.01.1917
Neðri deild: 19. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 115 í B-deild Alþingistíðinda. (192)

47. mál, bann við sölu og leigu skipa úr landi

Flutnm. (Matthías Ólafsson):

Það hefir heyrst, að Íslendingar muni jafnvel ætla að selja sumt af skipastól sínum til útlanda bráðum. Það er sagt, að nú hafi verið boðin svo góð boð í skipin, að freistingin sje orðin mjög mikil til að selja. Jeg hygg, að það væri ekki heppilegt fyrir okkur, að leyfa þetta. Það væri ekkert smáræðistjón fyrir okkur, ef skipunum fækkaði nú. Atvinnutjónið yrði afskaplega mikið, því umsetningin og atvinnan, sem hvert skip veitir, er svo mikil. Það kann að vera hart, að menn skuli ekki mega fara með eignir sínar, svo sem þeim best líkar, en ef hagur allrar þjóðarinnar er í veði, þá sjá allir víst og játa, að ekki má taka til greina arðsvonir einstaklinganna.

Allar aðrar þjóðir, eða því sem næst, hafa líka sjeð, að þetta er sjálfsagt mál, og hafa því sett lög um þetta efni. En sje öðrum þjóðum þetta nauðsyn, hve miklu fremur er það þá ekki fyrir okkur, sem eigum alt að okkur að sækja og frá okkur að færa á sjó.

Jeg býst við að nafn háttv. 2. þm. Árn. (E. A.), sem meðflutningsmanns að þessu frv., sje trygging fyrir því, að lagaformið sje rjett.