12.01.1917
Neðri deild: 24. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 117 í B-deild Alþingistíðinda. (198)

47. mál, bann við sölu og leigu skipa úr landi

Flutnm. (Matthías Ólafsson):

Það er í fyrsta skifti og verður væntanlega í síðasta sinni, sem jeg stend upp til að mæla móti máli, sem jeg hefi verið flutningsmaður að.

Jeg finn mjer því skylt, að gjöra nokkra grein fyrir, hvernig það atvikaðist, að jeg gjörðist meðflutningsmaður að þessu frumvarpi.

Háttv. þingmaður Borgfirðinga (P. O.), sem jeg að öðru leyti met mikils, vegna áhuga hans á landsmálum, hafði getið þess við mig, að hann hefði heyrt, að til stæði að selja eitt af botnvörpuskipunum íslensku til útlanda. Spurði hann mig um, hvort jeg áliti það eigi athugavert, og því ástæða til að banna með lögum útflutning skipa. Jeg lofaði honum að athuga málið, en mjer hafði enginn tími unnist til að hugleiða málið, vegna annara anna. En kvöldið áður en þessu frumvarpi var útbýtt í deildinni kom hann til mín aftur, þegar jeg var í önnum, og tjáði mjer, að hann hefði heyrt, að selja ætti 2 botnvörpuskip, og hann áliti bráða nauðsyn bera til, að koma í veg fyrir það með lögum, sem afgreidd yrðu í skyndi frá þinginu og staðfest símleiðis.

Mjer virtist í svipinn, að þetta gæti verið nauðsynlegt, en hafði eigi, svo sem fyr er sagt, haft tíma til að athuga þetta nánar. Ljet jeg þar tilfinninguna hlaupa með mig, en hún er einatt ljelegur ráðanautur í stjórnmálum.

Þegar við vorum að tala um þetta kom háttv. 2. þm. Árn. (E. A.) að, og bárum við þetta mál undir hann og var hann þegar á sama máli. Settist hann þegar niður og skrifaði frumvarpið. Jeg leit á það, sem hann hafði skrifað, og sá þá, að hann hafði sett nafn mitt fremst flutningsmanna á frumvarpið. Jeg vakti þá þegar athygli hans á því, að nafn háttv. þm. Borgfirðinga (P. O.) ætti að standa fyrst á frumvarpinu, því að hann væri fyrsti hvatamaður til þess, að frumvarpið kæmi fram. Hann kvað það litla þýðingu hafa hver fyrstur stæði af flutningsmönnum, og var háttv. þm. Borgf. á sama máli, og gjörði jeg þá ekkert veður út af því. Þegar frv. var útbýtt út hjer í deildinni, sá jeg að háttv. þm. Dalamanna (B. J.) var einnig meðflutningsmaður að því, en það vissi jeg ekki fyr, því jeg fór burtu þegar, er frumvarpið var komið inn á skrifstofuna. Þetta eru hin sönnu tildrög til þess, að jeg varð við málið riðinn.

Við fyrstu umr. málsins hjer í deildinni mælti jeg nokkur orð fyrir frv., frá því sjónarmiði, er jeg þá hafði á málinu.

En er þeirri umr. var lokið, var mjer bent á margvíslegt óhagræði— og jafnvel tjón, er af því gæti leitt, ef frv. yrði að lögum.

Þegar svo frv. næst kom á dagskrá hjer í deildinni, mæltist jeg því til við hæstv. forseta, að hann tæki það út af dagskrá, og varð hann við þeim tilmælum mínum. Ætlaði jeg að gjöra tilraun til að fá meðflutningsmenn mína til að taka frv. aftur.

Þess var þó enginn kostur, en þeir fjellust á, að rýmka undanþáguheimild stjórnarinnar, og er það að vísu kostur við frv., þótt það að sjálfsögðu gjöri það þá minna virði, fyrir þá, er halda því fast fram. En þótt svo væri rýmkuð undanþágan, virtist mjer frv. all athugavert fyrir því.

Þegar nú frv. kom til 2. umr. í deildinni, stóð svo á, að háttv. 2. þm. Árn. (E. A.) stóð fyrir framan mig, og var að tala við mig um annað mál. Tók jeg því eigi eftir, að hæstv. forseti hljóp

yfir mál, sem var á undan á dagskránni, og með því enginn tók til máls, var þegar gengið til atkvæða. Veitti jeg því þá fyrst eftirtekt, að það var um þetta mál, sem atkvæði var greitt, og var þá um seinan að fá tekið til máls um það. Jeg gat að eins komist hjá að greiða atkv. um það.

Jeg sje, að mörgum þingmönnum kemur þessi framkoma mín í málinu kynlega fyrir, sje það af brosi því, er leikur um varir þeirra. En jeg tek mjer það engan veginn nærri. Hve seint sem jeg sje að mjer hefir skjátlast, þá hefi jeg einurð til að kannast við það, og reyni að bæta úr yfirsjón minni, ef unt er, og jeg kannaðist við, að í þessu máli hefði mjer skjátlast. Það er mannlegt að yfirsjást, en drengilegt að kannast við það.

Að svo mæltu skal jeg nú snúa mjer að þeim mótbárum, sem jeg hefi fram að færa gegn frv.

Það er satt, að ekki einn eða tveir af botnvörpuskipaeigendunum, heldur þeir allir, hafa fengið tilboð um kaup á skipum þeirra, en hitt er ekki satt, að í ráði sje að selja neitt af þeim, svo með því er í raun og veru aðalástæðan fyrir því, að þetta frumvarp er framkomið, fallin.

En þá segja menn, að þótt nú sje eigi í ráði að selja neitt af skipunum, þá geti ávalt verið hætta á, að slíkt verði gjört, og freistingin sje mikil fyrir íslenska skipaeigendur, þar sem þeim er boðið afar-hátt verð í skipin, en hagur af útgjörð hins vegar tvísýnn.

Hvað sem nú hagsvoninni líður, þá er það víst, að sumir útgjörðarmennirnir vilja fremur auka en minka skipaeign sína. Þetta er og mjög eðlilegt. Þeir hafa bygt stórar byggingar eingöngu til salt-, kola-, fisk- og veiðarfærageymslu. Kosta sumar þessar byggingar svo að hundruð þúsunda króna skiftir. Er eigi líklegt, að þeir vildu láta þær eignir standa arðlausar, en það gjörðu þær, ef þeir seldu skipin, því húsin verða eigi til annars notuð.

Hins vegar er það kunnugt, að mörg af hinum íslensku botnvörpuskipum eru orðin gömul og þurfa bráðlega mikillar aðgjörðar við. En sú aðgjörð er mjög dýr og engan veginn víst, að hún fáist, og þótt hún fengist, þá eru þó skipin aldrei sem ný skip. Meðal annars eru vjelar skipanna gamlar, og miklu kolafrekari en nýjustu vjelar. Af þessu gæti þá það leitt, að skipin yrði dæmd ósjófær og engum að gagni, en eigendunum til stórtjóns. Hins vegar eru mikil líkindi til, að hægt væri að selja þessi skip fyrir allhátt verð, meðan eftirspurn eftir skipum er sem mest, og að fyrir verð þeirra mætti fá nýleg, eða ef til vill alveg ný skip, og yrði þá unt að yngja skipastólinn upp, útgjörðarmönnum að kostnaðarlausu, og væri það engan veginn lítilsvert.

Þetta er ekki sagt út í bláinn, því þetta hefir verið gjört hjer af leiknum kaupsýslumönnum. Ásgeir Pjetursson keypti »Christian IX.« og seldi hann eftir stuttan tíma með talsverðum hag, og notar að sjálfsögðu þann hag til að auka útveg sinn. Thor Jensen keypti og gamla »Mjölni« og átti hann nokkra mánuði, og seldi hann þá aftur með miklum hag. Nú hefir hann gjört ráðstafanir til að kaupa stærra skip í hans stað, og getur ef til vill fengið það fyrir verð Mjölnis. Virðist þetta vera auðsær hagur, eigi að eins fyrir þessa einstaklinga heldur og fyrir þjóðarheildina. Því meira framrými (Tonnage) sem vjer Íslendingar höfum ráð yfir, því betur erum vjer á vegi staddir með aðflutninga til, og jeg veit, að Thor Jensen hefir getað boðið landsstjórninni farmrúm í skipum, sem hann hefir þegar keypt. En nú er það alkunna, að á þessum tímum er ekki hægt að fá annað en gömul skip. Þeir sem þau kaupa, hafa því í hyggju, að reyna að koma þeim af sjer, ef þeir sjá sjer fært að fá nýrri og betri skip í staðinn, og ætti það að vera auðsær þjóðarhagur. En þröskuldur fyrir því gæti þessi lög orðið. Hversu rúm sem undanþágan er, gæti bannið þó komið í veg fyrir, að slík gömul skip yrði seld. Setjum sem dæmi, að viðkomanda væri settur sólarhringsfrestur, eða jafnvel styttri, og hann væri staddur í útlöndum. Svarið gæti komið of seint frá stjórninni hjer og svo gæti gengið koll af kolli.

Enn má gjöra ráð fyrir, að vjer af einhverjum ástæðum fengjum eigi kol frá Englandi eða eitthvað annað það, er til útgjörðar heyrir, eða þetta yrði svo dýrt, að engin tök væri á að gjöra út, þá væri eigi annað fyrir en að leggja skipunum upp. Hvað væri þá unnið við bannið. Mjer mun svarað því, að þá mundi stjórnin að sjálfsögðu veita undanþágu. En þá væri það um seinan. Enginn óvitlaus útlendingur mundi bjóða sæmilegt verð í skip, sem hann vissi, að seljandi gæti eigi haft neitt upp úr, ef hann eigi keypti af honum.

Af þessum ástæðum mun jeg greiða atkv. móti frv.