12.01.1917
Neðri deild: 24. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 125 í B-deild Alþingistíðinda. (201)

47. mál, bann við sölu og leigu skipa úr landi

Ráðherra Björn Kristjánsson:

Viðvíkjandi spurningu háttv. þm. Dala. (B. J.), vil jeg leyfa mjer að lýsa því yfir, — jeg hygg, að mjer sje óhætt að gjöra það fyrir hönd stjórnarinnar allrar, — að hún mundi veita undanþágu þessa, þegar ástæður eru fyrir hendi, og að það getur ekki orðið til óhags fyrir land og þjóð.