12.01.1917
Neðri deild: 24. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 125 í B-deild Alþingistíðinda. (202)
47. mál, bann við sölu og leigu skipa úr landi
Pjetur Ottesen:
Mjer þykir það kynlegt, hversu hugur háttv. flutnm. (M. Ó.) hefir snúist á áttinni síðan frv. þetta var samið.
Það er alveg rjett, að jeg átti upptökin að því, að mál þetta komst inn í þingið. Jeg hafði sem sagt heyrt þess getið, að það mundi jafnvel vera í ráði, að eitthvað af fiskiflotanum okkar, trollurunum, yrði selt út úr landinu.
Það er altalað að Englendingar bjóði afskaplegt verð í slík skip, enda er það næsta eðlilegt, þar sem skipastóll þeirra ekki hvað síst, hefir orðið fyrir svo miklum hnekki, en þeir meta einmitt skip af þessari gerð svo mikið í þarfir hernaðarins. Jeg man ekki betur, en að háttv. aðalflutningsm. þessa frv. (M. Ó.) ljeti falla orð við mig í þá átt, er mál þetta var hjer til 1. umr., að hann hefði komist að raun um það, að þessi grunur minn, um sölu skipa út úr landinu, mundi vera á fullum rökum bygður.
Það má að vísu segja, að frv. þetta gangi fullnærri rjetti skipaeigenda, en eins og háttv. 2. þm. Árn. (E A.) hefir rjettilega tekið fram, verður augnablikshagur einstaklingsins að lúta í lægra haldi fyrir hagsmunum, heill og velferð þjóðarinnar, þegar þetta getur ekki farið saman.
Hjer er um þjóðarnauðsyn að ræða, og við megum illa við því, hjer norður á hjara heims og fjarri alþjóðaleiðum, að höggvið sje skarð í þann litla skipaflota, sem til er í landinu.
Úr því að frv. þetta gangi alt of nærri rjetti skipaeigenda, dregur það og, að landsstjórnin getur veitt undanþágu í vissum tilfellum.
Ef skipaeigendur væru svo hepnir, að geta nú selt þau skip, sem farin eru að eldast og fengið önnur ný í staðinn, sem þó naumast þarf að gjöra ráð fyrir, eins og nú er högum háttað, þar sem nær ómögulegt er að fá skip, hvað sem í boði er, þá mun stjórnin að sjálfsögðu líta á þær ástæður og gefa undanþágu.
Það var fyrir nokkrum árum, að hjeðan voru seld fiskiskip mörg til Færeyja. Það hefir má ske verið stundarhagnaður fyrir seljendur, en stórhnekkir bæði fyrir þá og landið þegar frá leið, því það er öllum kunnugt, að fiskiskip hafa borið hjer góðan arð og veitt bestu atvinnu.
Jeg vil að síðustu lýsa yfir því, að jeg felst á brtt. háttv. 2. þm. Árn. (8. S) og vona, að frv. með þeim breytingum fái fram að ganga.