12.01.1917
Neðri deild: 24. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 129 í B-deild Alþingistíðinda. (204)

47. mál, bann við sölu og leigu skipa úr landi

Pjetur Þórðarson:

Háttv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.) lagði háttv. deild — og þar með hverjum einstökum þm. — mjög »ríkt á hjarta« úrslit þessa máls, og ætla jeg því að gjöra grein fyrir mínu atkvæði. Sami háttv. þm. (M. Ó.) lýsti það ástæðuna fyrir hughvörfum sínum í þessu máli, að alt of nærri væri gengið rjetti skipaeigenda, að gjöra þeim ókleift að selja skip sín, ef alt, sem til útgjörðar heyrir, yrði óhæfilega dýrt. Það vildi svo til um daginn, að jeg varð heyrnarvottur að því, er nafnkendur útgjörðarmaður, sem er gufuskipaeigandi, var að tala við einhverja um það, hvað þingið myndi gjöra við breska samninginn. Hann ljet þau orð falla, að ef þingið gjörði ekkert til að bæta úr viðskiftunum um innkaup á útgjörðarvörum, eða gjörði ónóg til að ráða bót á afleiðingum styrjaldarinnar fyrir fiskveiðarnar, þá væri rjettast að selja öll skip á einu »bretti« út úrlandinu.

Þetta tel jeg allþýðingarmikið atriði. Vegna þessarar hættu, verð jeg að segja, að það gladdi mig, er frv. þetta kom fram. Af því mun mega ráða, hvernig jeg greiði atkv. í þessu máli.