11.01.1917
Neðri deild: 21. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 141 í B-deild Alþingistíðinda. (216)
40. mál, kaup á eimskipum til vöruflutninga
Björn Stefánsson:
Þessi brtt. á þgskj. 123, sem fram hefir komið frá háttv. þm. Dala. (B. J.), hefir ekki komið í ljós fyr en nú rjett áðan, og því ekki komið til tals hjá samgöngumálanefndinni. Get jeg varla sagt, að jeg hafi sjeð tillöguna, en hygg þó, að jeg geti veitt henni eindregið fylgi mitt.
Það, sem hvetur mig til þess að fara lengra en nefndin ætlaðist til, er símskeyti, sem komið hefir frá Krabbe, og prentað er á þgskj. 98. Ber það ótvírætt með sjer, að hið Sameinaða ætlar að brjóta á okkur alla samninga og nota sjer neyð okkar. Það býst auðsjáanlega ekki við, að við höfum önnur úrræði en að vera upp á þess náð komnir, því í skeytinu stendur, að önnur samningsúrslit sje ófáanleg. Þess vegna finst mjer ekki rjett, að láta stjórnina bresta heimild til annara úrræða, ef þau væru fyrir hendi.
Auk þess er jeg ekki viss um, að skipakostur sá, sem bent er á í nefndarálitinu, sje okkur nægilegur, einkum af því að ekki getur talist örugt á þessum tímum, að engin vanhöld verði á honum.
Í nefndarálitinu stendur meðal annars sjá tölulið 3, A. bls. 108 »Skip sameinaða« o. s. frv. Það mun rjett vera, að við eigum von á, að gangi jafnmörg skip og áður í fastri áætlun frá því Sameinaða, en mjer er ekki kunnugt um, að við höfum neina vissu fyrir eins mörgum aukaskipum og gengu síðastliðið ár. Stjórn Eimskipafjelagsins hefir bæði skriflega og munnlega leitt líkur að því, að betri aðflutningur fáist til landsins á þessu ári, en undanfarið, og það af þeim orsökum meðal annars, að nýja skipið, sem fengið verður í stað Goðafoss, ber 200 tonnum meira, en hann gjörði. En jeg efast um, að sá stærðarmunur gjöri meira en vinna upp þann samgöngumissi, sem orðið hefir á, þar sem Goðafoss gat ekki farið janúarferð sína, og búast má við, að talsvert verði komið fram á þetta ár, þegar nýja skipið er tekið til starfa. Auk þess veit jeg ekki til, að Flóra gangi neitt þetta ár, en hún fór þó nokkrar ferðir í fyrra. Enn fremur eru aukaferðir Sameinaða fjelagsins síður en tryggar, en töluverður hnekkir er að, ef þær leggjast niður. Auk alls þessa eru nú þeir tímar, að búast má við vanhöldum á skipum, en nú er ekki fljótgjört, að bæta úr vanhöldum. Auk þessa ber enn að líta á, hvort ekki eru meiri birgðir óútfluttar nú við áramót en voru í fyrra, og eins hitt, hvort landið er nú ekki fátækara af útlendri vöru en það var fyrir ári. Jeg er engan kvíðboga að bera fyrir því, að við sveltum á komandi tímum. Á því er ekki mikil hætta í landi því, sem því nær eingöngu framleiðir matvæli, en jeg sje fram á, að ef samgöngurnar leggjast að einhverju leyti niður, svo að skortur verði á þeim, þá fara atvinnuvegir vorir og framleiðsla í kaldakol.
Jeg veit það vel, að með rökum má sýna fram á, að skipakaupum fylgir áhætta, en spurning er, hvort ekki sje meiri áhætta, að stjórn landsins sje heimildarlaus til skipakaupa, hvað sem fyrir kann að koma og hve brýn þörf sem gjörist. Alt virðist því benda til þess, að fela beri stjórninni að sjá landinu fyrir tryggum samgöngum og láta hana því hafa sem óbundnastar hendur, enda sýnist mjer engin ástæða til að væna stjórnina þess, að hún muni hjer flana að skipakaupum, eða sýna nokkurn flysjungsskap í því, hvernig hún notar heimild þá, sem henni verður gefin með lögum þessum. Það er og jafn. gott, að hið Sameinaða sjái, að vjer Íslendingar eigum einhvers annars úrkostar en að lúta að öllu boðum þess.
Jeg hefði helst óskað, að Eimskipafjelagsstjórnin hefði sjeð sjer fært að gjöra þessi skipakaup. En slíks er ekki von, þar sem um talsverða áhættu er að ræða. Og þótt jeg sje nú ekki beint hræddur um, að skip falli bráðlega í verði að neinum mun, þá fanst mjer þó rjett, að landið tæki sjálft alla áhættu upp á sig, því það er færara fyrir öllum skellum en Eimskipafjelagið.
Vil jeg því í fullu trausti þess, að stjórnin misbrúki ekki heimild þá, sem henni veitist með frv. þessu, leggja til að það verði samþykt.